miðvikudagur, 4. mars 2009

Hagstæðari bindi og tappar

Mér datt í hug að benda konum á, að í Krónunni fást dömubindi sem heita
Diana, 10 stk á 99kr, meðan Always bindin eru í kringum 500kr pakkinn.
Einnig fæst í Bónus bindi frá Euroshopper á 149kr, og OB tappar á svipuðu
verði.
Ég hef ekki keypt aðrar vörur en þessar lengi, og eru þær ekkert síðri en
dýrari vörur.
Þannig að það borgar sig þegar maður á leið í Krónuna, að kaupa nokkra pakka af
Diana bindunum og eiga, heldur en að hlaupa útí búð í vanda, og kaupa pakka á
500-700kr.
Kveðja,
Gígja.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli