Okursíða Dr. Gunna (á netinu síðan 21. sept 2007) - Endilega reyndu að hemja þig þegar þú kommentar. Fólk hefur misþykkan skráp.
miðvikudagur, 18. mars 2009
Auglýst verð ferðaskrifstofa
Er ekki tímabært að biðja ferðaskrifstofurnar að hætta að auglýsa öll verð miðað við tvo fullorðna og tvö börn undir 11 ára? Væri ekki nær að benda þeim á að auglýsa rétt verð og gefa upp barnaafsláttinn sér. Hallgrímur
Ég er svo sammála þessu. Þetta er ótrúlega leiðinlegt. Ég tala nú ekki um ef maður ætlar að ferðast einsmall.
SvaraEyða