mánudagur, 30. mars 2009

Heiðarleg steypustöð

Ég þurfti að kaupa steypu í nóvember og fékk tilboð frá þremur steypustöðvun. Steypustöðin Borg var með lægsta tilboðið þannig að ég tók því og greiddi uppsett verð daginn áður en þeir komu og steyptu. Nú deginum eftir steypunina hringja þeir frá Borg og biðja mig um reikningsnúmer vegna þess að þeir þurfi að endurgreiða mér þar sem ég notaði ekki allt íblöndunarefnis sem ég hafði greitt fyrir.
Málið er að ég hefði ekki vitað af því ef þeir hefðu ekki hringt og endurgreidd mér. Að mínu mati heiðaleg þjónusta.
kveðja Sigríður

1 ummæli:

  1. Ég samgleðst þér að hafa valið svo gott fyrirtæki að skipta við. Kv. Gunnar Geir

    SvaraEyða