þriðjudagur, 10. mars 2009

Dýrt kakó í kulda

Var að labba með konunni og guttanum mínum sem er að verða eins árs niður laugaveginn á köldum íslenskum laugardegi. Ég hugsa með mér að gera vel við konuna og ákveð að stökkva inn í Te og kaffi og kaupa 2 kakó með rjóma, til að taka með svona í pappamáli. 780 krónur!!!!!! Ég meina 390 kall fyrir eitt ræfilslegt kakóglas, það lá við að ég hætti við, en kuldinn var mikill og var þetta skammgóður vermir, en ég sá eftir peningnum það sem eftir lifði dags!
Kaldur íslenskur fjölskyldufaðir!

2 ummæli:

  1. Það er líka skammgóður vermir að pissa í skóna sína. Mæli með því næst.

    SvaraEyða
  2. Hvað á eitt "ræfilslegt" kakóglas að kosta?

    SvaraEyða