Bygging Tónlistar- og Ráðstefnuhúss stefnir nú þegar í yfir 25 milljarða
útgjöld, gæti skotist yfir 30 milljarða. Framreiknðar fyrri áætlanir eru allar
kolsprungnar,voru feik ! Aldei hafa verið peningar í sjóði. A.m.k. 2/3
hlutar kostnaðar eru gjaldeyrisútgjöld,erlent lánsfé. Ekkert má hrófla
við því fari sem gjaldþrota Portus( & ÍAV) bjó til árið 2006.
Raunsær útreikningur á fjármagnskostnaði TR framkvæmdar verður á
bilinu 1.5 til 2 milljarðar árlega miðað við 35 ára lánstíma á bestu vaxtakjörum,
leggst við almenn rekstrarútgjöld hússins.
Reksturinn verður sjálfbær er nú fullyrt. Ef sá villti draumur rætist að allt að
160.000 manns njóti viðburða í TR árlega, þarf húsið samt að ná inn 10-15.000 kr.
hústekjum af hverjum gesti að jafnaði á mann , bara upp í fjármagnskostnað .
Slíkt okur gerir húsið ónothæft fyrir almenning og fyrir listamenn ! Þá verður
sú ein leið fær að skemmta skattgreiðendum með okurálagi á skatta ef bjarga
á fjármagnskostnaði TR í horn. TR er fyrirfram í "tæknilegu gjaldþroti" .
Þessar döpru staðreyndir blasa við. Má ekki bregðast við þeim?
Baldur Andrésson
Ja annaðhvort þetta eða þá staðreynd að við þurfum alltaf að fara erlendis til þess að njóta heimsklassa tónlistarmanna (sem neita að spila í kvikmyndahúsi með hræðilegum hljómburði) við bestu aðstæður.
SvaraEyðaAf hverju þarf að byggja öll þessi fótbolta hús? Er Egilshöll ekki farin á hausinn ? Ég veit að Fjarðarbyggð þarf að berjast við að reka stórt og mikið fótboltahús á Reyðarfirði sem þó var byggt með 50% styrki frá Alcoa. Og svo er Fjarðarbyggð líka tekin yfir líkamsræktina sem staðsett er t.d. í þessu risavaxna boltahúsi á Reyðarfirði.
Allt í lagi að benda á gallana við Tónlistarhúsin en öll þessi stóru boltahús eiga líka að fá sinn skerf af gagnrýni.
Heyr Heyr,
SvaraEyðaRáðstefnu og tónlistarhúsið mun skapa gríðarlegar tekjur í framtíðinni og gera Íslands almennilega samkeppnishæft í ráðstefnugeiranum. Sem veltir gríðarlegum fjármunum. Fótboltahúsin gera það ekki.
Annars á svona komment ekki heima á okursíðunni, menn ættu að geta fengið útrás fyrir svona blogg annarstaðar