miðvikudagur, 1. júlí 2009

Barnavörur á klink

Varð að láta þig vita af góðu verði á snuðum, pelum og öðru smálegu barnadóti í
Klinkinu, eða hvað það nú heitir, útsölumarkaðurinn í Skeifunni.
Mér blöskraði verðið að snuðum í Bónus, en nú kostar þar pakki með tveimur Nuk
snuðum tæpar 800 kr. (ca. 795) og eins í Hagkaup, (799 kr.).
Kíkti í Klinkið og þeir eru með Chicco barnavörur og þar er hægt að fá snuð á
99 kr. og tvö í pakka á 199 kr, og reiknaðu nú.
kv.
Aldís

2 ummæli:

  1. Svo er til frábær búð í Hafnarfirði með notuð hræódýr barnaföt,hérna er tengill á heimasíðuna: http://www.gaflarinn.net/index.php?pid=268

    SvaraEyða
  2. Fínt verð. Skondið samt að 2 snuð í pakka kosti 1 krónu meira en 2 einstök snuð :D

    SvaraEyða