þriðjudagur, 19. maí 2009

Undarleg verð á kviðbelti

Ég var að eignast barn og er því að vinna í því að fá magavöðvana aftur og ákvað ég því að fjárfesta í kviðbelti sem sjónvarpsmarkaðurinn er að selja. En það væri ekki í frásögur færandi nema að fyrst þegar ég skoðaði beltið kostaði það 9.900 auglýst sem TILBOÐ-LÆKKAÐ VERÐ. Þetta var fyrir viku síðan, en svo í dag þegar ég ætla að ganga frá þessu kostar beltið 13.900 auglýst sem tilboð lækkað verð, verð áður 19.900. Er þetta leyfilegt ég bara spyr.
Ég hætti við kaupin og fann mun ódýrara belti á ebay
Eygló

1 ummæli:

  1. nei þetta er kolólöglegt. kvartaðu til neytendaréttarsviðs neytendastofu.

    SvaraEyða