miðvikudagur, 6. maí 2009

Bréf til Lyf og heilsu

(Þessi póstur var líka sendur til Lyf og heilsu):
Álpaðist til að versla af ykkur (lyf og heilsa) firði í hádeginu í gær 05.05.09 um kl 12:20 . Astma lyf 3 stl ventolin, 3 stk seretide 50/500 og 3 stk flixonase - kostnaður uppá 12.585 kr.
Eftir verðkönnunn kom í ljós að ég hefði einungis þurft að greiða 6.418. - kr fyrir sömu lyf. hjá Lyfjaveri -
Finnst ykkur þetta vera í lagi ?
Ég ætla að bjóða ykkur uppá að endurskoða þessa verðlagningu og greiða mér til baka. reikn 1169 - 05 - ..... .- eða að ég skila lyfjunum - ég bara get ekki látið bjóða mér svona framkomu á þessum siðustu og verstu tímum. -
Kv, Halldór B. Halldórsson

14 ummæli:

  1. endilega leyfðu okkur að fylgjast með hverju þeir svara

    SvaraEyða
  2. leyfðu þeim líka bara að fara á hausinn þessum okurbúllum, lyfju og lyfjum og heilsu. ekki versla þarna. en flott hjá þér annars.

    SvaraEyða
  3. Hvað haldið þið að gerist þegar Lyf og Heilsa og Lyfja eru farin á hausinn ? Ætli verðið muni þá haldast óbreytt í Lyfjaveri ? Ekki mörg önnur Apótek í gangi

    SvaraEyða
  4. Laugarnes apótek sem mér skilst að sé einkarekið og ekki keðja, er yfirleitt með mjög hagstæð verð... mæli með að menn kíki á það

    SvaraEyða
  5. Ef þau fara á hausinn good riddance opna markaðinn bara fyrir fleiri minni betur rekin einkarekin apótek og mun heilbrigðari samkeppnis stöðu!
    Lyf og heilsa og Lyfja eru með hvað 50-70% af markaðnum í lyfjabransanum hérlendis og eins og hefur marg sýnt sig þá er svona einokunar fákeppnis aðstaða á markaði ALLS ekki gott fyrir þjóðfélag

    SvaraEyða
  6. skipholts, laugarnes, reykjavíkur (þetta nýja í vesturbænum), rima, árbæjar, bílaapótekið og fleiri eru held ég einkarekin. og held ég öll ódýrari en keðjurnar tvær.

    SvaraEyða
  7. Laugarnesapótek er frábært, gott verð og frábær þjónusta, snyrtivörurnar ódýrari enn í Hagkaup

    SvaraEyða
  8. Skipholtsapótek er í eigu Lyf og heilsu EKKI einkarekið, heyrði að Lyfja og Lyf & heilsa væru með nærri 80% af markaðnum.

    SvaraEyða
  9. En baðstu ekki um að ath hvort til séu samheitarlyf ??

    Nú er apótekari skyldugur að gefa þér það upp ef til eru.

    SvaraEyða
  10. Garðsapótek er með mjög góð verð og frábæra þjónustu,sérstaklega við eldri borgara.

    SvaraEyða
  11. Mæli með Garðsapoteki,,góð verð og frábær þjónusta

    SvaraEyða
  12. Sammála með Garðsapótek, þar getur gamla fólkið fengið sér sæti og kaffi á meðan það bíður.

    SvaraEyða
  13. Lyf og heilsa er alltaf með dýrasta verðið í verðkönnunum. Hvers vegna í ósköpunum heldur fólk áfram að svekkja sig með því að versla við þetta fyrirtæki og sitja svo uppi með sárt ennið? Ég hef góða reynslu af Rima apóteki. Þeir eru sveigjanlegir og liprir.

    SvaraEyða
  14. Apòtekarinn tilheyrir lìka Lyf og heilsu eins og Skipholtsapòtek. Allt ì eigu Karls Werners ùtràsarvìkings.

    SvaraEyða