miðvikudagur, 22. apríl 2009

Naglhreinsun

Ég gerði verðsamanburð áður en ég fór með dekkin undan bílnum (station) í naglhreinsun, munaði allt að helmingi á verði milli fyrirtækja. N1 í Hafnarfirði var dýrastur yfir 12.000 kr. kostar þar að naglhreinsa og jafnvægisstilla, hjá Bílkó kostar það rétt yfir 9.000 en ódýrast hjá Hjólkó eða 6.900 með öllu.
kv. Barbara

2 ummæli:

  1. Þetta ætti að kosta yfir 20.000 þar sem að þetta er leiðinlegasta og mest mannskemmandi aðgerð sem til er.

    SvaraEyða
  2. Þetta gerirðu bara sjálfur með góðum naglbíti

    SvaraEyða