miðvikudagur, 22. apríl 2009

Batteríisokur í Mjódd

Langar að segja frá miklu okri. Þannig er að mig vantaði batterí í göngumælinn minn. Batteríin eru kringlótt/lítil.
Fór í Mjóddina til úrsmiðsins sem er staðsettur nær strætóstöðinni.
Þar kostaði 1 slíkt batterí 800 kr. Afgreiðsludaman var búin að renna kortinu mínu í gegn áður en ég áttaði mig að það væri fyrir 1 stk. (hélt að það væri fyrir 2 stk. sem eru saman í pakka)
Þannig að ég varð að samþykkja það.
Mig langaði að vita hvað sami hlutur kostaði í skartgripaverslun sem er í Mjódd einnig og er rétt hjá bakaríinu. Viti menn þar kostaði 1 stk. batterí 450 kr.
Ef þetta er ekki OKUR þá veit ég ekki hvað er okur.
Kv. Dódó

1 ummæli:

  1. Ef þú hefðir labbað aðeins lengra í mjóddini eða í Símabæ þá fengir þú stykkið á 390 með ísetningu eða keypt 10 stk á spjaldi á kr 1990.-

    SvaraEyða