mánudagur, 29. júní 2009

Ánægður með MP banka

Vil tala um það sem jákvætt er og það er að ég hóf fyrir stuttu síðan viðskipti hjá MP – banka, eftir að hafa í annað skipti hætt viðskiptum við Kaupþing, nema hvað að ég fékk meðal annars debetkort hjá MP - banka og þegar ég byrja að nota það, þá tek ég eftir því að það fer yfir heimild og ég fæ FIT kostnað í hausinn, eins og mun fylgja þessum venjulegu debetkortum, en ég hafði verið búinn að panta síhringikort, en þau stöðva greiðslur af kortinu ef engin er innistæðan.
Ég hafði samband við MP – banka út af þessu og er mér þá strax vel tekið og ég beðinn afsökunar á þessum mistökum og FIT kostnaðurinn sem áður hafði komið til, var endurgreiddur inn á reikninginn minn strax og mér síðan sent nýtt debetkort.
Svona góða þjónustu hjá MP – banka vill maður sjá hjá fyrirtækjum og fjármálastofnum,þau eru til fyrirmyndar hjá MP - banka.
Takk fyrir góða vefsíðu.
Kristján Blöndal.

1 ummæli:

  1. Flott að heyra þetta, lenti í því að fá FIT kostnað í hausinn vegna sambærilegra mistaka og það tók mig 2 klst að rífast í KAUPÞING um að fella þetta niður

    SvaraEyða