mánudagur, 30. mars 2009

Hjartaheill söfnunin

Mig langaði bara að senda þér línu eftir að ég hringdi styrktarsímtal til hjartaheillar í kvöld. Símsvarinn sagði þá: Bíddu í 4 sekúndur eftir að hljóðmerkið heyrist og þá verður gjaldfært 3000 kr á símreikninginn þinn AUK 79 kr. ÞJÓNUSTUGJALDS til Símans.
Hvað er í gangi? Söfnun í gangi og auðvitað sér Síminn það sem auðgunartækifæri
Ég var svolítið fúl þegar ég heyrði að ég hefði verið að gefa 79 kr til Símans. Eins og þeir séu ekki að okra nógu mikið á manni nú þegar..
Lilja G

1 ummæli:

  1. Jamm leit illa út, en svo var skorað á Símann að gefa þetta í söfnunina. Þeir ákváðu að gera það ca 1 millj. Þannig að þeir sáu að sér með það.

    SvaraEyða