þriðjudagur, 31. mars 2009

Strætó vondir við unglinga

Mig langar að benda á það óréttlæti gegn unglingum sem felst í gjaldskrá strætó. Stök fargjöld fyrir 11-18 ára eru 100 kr. Börn 6-11 geta keypt 20 miða á 750 kr. eða 38 kr. farið, unglingar 12-18 ára geta hins vegar keypt 16 miða á 1600 kr. eða 100 kr. farið, sem sagt enginn afsláttur við að kaupa miða þar. Fullorðnir greiða 280 fyrir staka ferð en 11 miðar fyrir þá eru á 2500 eða 227 kr. hver ferð. Ég skrifaði strætó í lok síðasta sumars og benti á þetta, en þeir hafa ekki séð ástæðu til að svara erindi mínu eða lagfæra hjá sér gjaldskránna.
Laufey

Ha, okur í 10/11...?!

Ekki veit ég hvort það taki því að tala um okur í 10/11 verslunum en um daginn var mér þó nóg boðið. Reyndar á þetta sér smá forsögu því í desember átti ég leið í 10/11 til að kaupa mér kveikjara, þeir höfðu þangað til verið á verðbilinu 80 - 150kr en þetta kvöld var mér seldur kveikjari á 279 krónur. Mér fannst það heldur dýrt en hló þó að þessu og ákvað að ekki skyldi ég kaupa aftur kveikjara hjá þeim. Svo lenti ég í því um daginn að ég gleymdi kveikjaranum mínum og sárvantaði eld. Ég var rétt hjá 10/11 verslun en minnugur kveikjaraokursins þá ákvað ég að gerast hagssýnn og kaupa mér eldspítustokk. Þangað til fyrir um ári kostaði einn svona stokkur 10 kall en þá hækkaði hann á flestum stöðum upp í 15 krónur. En mig rak í rogastans þegar ég kíkti á strimilinn, eldspítustokkurinn kostaði 69 krónur. Það má líkja þessu við að ef mjólkurlítrinn hafi kostað 100 kall fyrir ári þá kostaði hann 690 krónur í dag eða að hægt væri að tala jafnlengi í gsm frelsi fyrir 6900 krónur í dag og fyrir 1000 krónur fyrir ári. Ef verslanir hegðuðu sér almennt svona og hækkuðu allar vörur um þessa prósentu, þá væri nú gaman að lifa, maður myndi sleppa við að fara í búðina og éta gras.
Friðrik Atlason

Skuldfærslugjald hækkar um nær 200% á 6 mánuðum

Einhver talaði um skuldfærslugjald upp á 120 kr. ! Á hálfu ári hefur skuldfærslugjald hjá Kreditkort hf. (MasterCard) hækkað um 193% úr 135kr. í 396 kr. Nú þarf maður að kanna hvort það er ódýrara að borga reikninginn sjálfur heldur en að leyfa þeim að gera þetta sjálfvirkt. Nú, eða segja upp kortinu því þetta kallast SJÁLFTAKA !!
Zor Gubb

mánudagur, 30. mars 2009

Vsk-lausudagarnir í Hagkaupum



Fór í Hagkaup í gær (Sunnudaginn 29.3.2009) með unga frænku mína, tilgangurinn
var að kaupa gúmmístígvél á dömuna. Hagkaup hafði auglýst "Vsk daga" á
skófatnað, sem þýðir að það hefði átt að vera 20% afsláttur af öllum
skófatnaði.
Það hefur lengi gengið sú flökkusaga að þeir hækki verðin fyrir Vsk daga og
trúði ég því svona rétt tæplega. Nú er ég hinsvegar sannfærð og hér er ég með
mynd því til sönnunar.
Stígvélin voru verðmerkt á 2490.- og borgaði ég 1999.- fyrir þau með afslætti.
Mjög illa hafði verið límt fyrir gamla verðmiðann svo það sást greinilega í
gegn að það hafði verið límt yfir gamla verðið. Og hvað kostuðu þau fyrir
hækkun?
Jú einmitt! 1999.- Vávává hvað ég græddi á þessu frábæra tilboði!
Helv.. bófar!
Valgerður G.
(P.s tók ekkert eftir þessu fyrr en heim var komið enda er athyglin svolítið
annarsstaðar en á verðmiðanum þegar maður verslar með 2 ára gömul börn :))
_______________________________

Rakaskemmdir

mig langar að minnast á þjónustuna hjá Símanum. Ég fór með síma sonarins í viðgerð, en hann var enn í viðgerð. Um viku síðar er hringt og sagt að það séu rakaskemmdir í símanum og að það svari ekki kostnaði að gera við hann. Ég kannaðist ekki við að neitt hefði komið fyrir símann sem hefði getað orsakað rakaskemmdir en starfsmaðurinn vildi meina að það væri nóg að vera með símann inni á baðherbergi þegar farið væri í sturtu til þess að slíkar skemmdir yrðu. Mér var sagt að viðgerðarmaðurinn hefði tekið myndir af skemmdunum og ég gæti fengið að sjá þær. Þegar ég fór í Símann Smáralind til að sækja símann og fá að sjá þessar myndir var mér sagt að ég gæti ekki fengið símann nema greiða skoðunargjald og samt var síminn í ábyrgð (og er enn), myndirnar fékk ég aftur á móti í tölvupósti. Ég get reyndar ekki sagt til um hvort það eru rakaskemmdir sem þar sjást eða hvort þessar myndir eru af síma sonar míns eða einhverjum öðrum síma. Þarna finnst mér freklega brotið á rétti neitenda, í fyrsta lagi með því að skýla sér á bakvið rakaskemmdir til þess að komast hjá því að gera við síma sem enn er í ábyrgð og hins vegar að neita að láta mig hafa hann í hendur nema borga þeim fyrir. Til hvers er þessi ábyrgð þá?
Laufey Ósk Þórðardóttir

Gamlar dýnur sem nýjar

Verð að deila með ykkur góðu sparnaðarráði.
Þannig er að dýnurnar okkar, sem eru um 10 ára gamlar, voru farnar að gefa sig ( eðlilega).
Þetta eru dýnur frá Ragnari Björnssyni, Hafnarfirði, svo ég fór inná heimasíðu þeirra til að kynna mér verð á nýjum dýnum.
Þar rak ég augun í það að RB rúm er eina þjónustufyrirtækið á sínu sviði sem býður endurhönnun á springdýnum eftir áralanga notkun.
Ég hringdi til að panta tíma fyrir dýnurnar mína, ...mætti síðan með þrjár dýnur kl. 8:00 að morgni og náði í þær aftur sama dag rétt fyrir lokun.
Þá var búið að stífa þær allar upp og skipta um áklæði á tveimur þeirra, … voru því eins og nýjar.
Það kostar 8.900,- að stífa upp hverja dýnu og nýtt áklæði kostaði sama, eða 8.900,-
Ég var farin að sjá fyrir mér mikil útgjöld í nýjum dýnum, þar sem góður nætursvefn og hvíld skiptir jú miklu máli.
Vildi því benda á þessa þjónustu hjá Ragnari Björnssyni, ef það hefur ekki verið gert áður.
kveðja,
Ágústa

Heiðarleg steypustöð

Ég þurfti að kaupa steypu í nóvember og fékk tilboð frá þremur steypustöðvun. Steypustöðin Borg var með lægsta tilboðið þannig að ég tók því og greiddi uppsett verð daginn áður en þeir komu og steyptu. Nú deginum eftir steypunina hringja þeir frá Borg og biðja mig um reikningsnúmer vegna þess að þeir þurfi að endurgreiða mér þar sem ég notaði ekki allt íblöndunarefnis sem ég hafði greitt fyrir.
Málið er að ég hefði ekki vitað af því ef þeir hefðu ekki hringt og endurgreidd mér. Að mínu mati heiðaleg þjónusta.
kveðja Sigríður

Besti díllinn á raksápu

Ég má til með að benda á besta dílinn í bænum í raksápu. Xtra raksápa í
Nettó kostar 199kr fyrir 300ml. Jafnstór af ódýrustu Gillette týpu kostar í
Europris 400-500kr.
-haffi

Afslátturinn í Bónus



Hér meðfylgjandi eru myndir sem ég tók að umbúðum af kjöti keyptu
í Bónus. En þannig var að við keyptum einn pakka og nokkrum dögum
síðar þegar við ætluðum að elda þetta þá fannst okkur þetta ekki
vega nóg. Þannig að við keyptum aðeins meira.
Þú sérð nú fljótlega hvað slær mann hér en um daginn var alveg
sérstakur afsláttur 50% !!! en síðar var 10% afsláttur en nú var varan
ódyrari !
Kv, Oddur

Títuberjasultan í Ikea ódýr

Fór í Hagkaup um daginn og keypti 400g af Títuberjasultu, hún kostar
þar c.a. 650kr.
Seinna sama dag fór ég í IKEA því þeir voru að auglýsa kjötbollur á
tilboði, þá rakst ég þar á 400g af Títuberjasultu á 260kr.
Held ég fari að kíkja oftar í þessa IKEA matvörubúð, því þar er
ýmislegt hægt að fá á hlægilegu verði.
Þórarinn Þórarinsson

Okur á rúðuþurrkublaði



Þeir hjá N1 okursjoppunni eru nú ekki í vandræðum með að verðleggja hlutina eins og meðfylgjandi mynd sýnir.
Eitt stykki rúðuþurrkublað kostar 2.690 krónur takk fyrir!
Maður er meira eða minna tilneyddur að kaupa þetta því að óbeina samráðið er svo mikið og samkeppnin nákvæmlega engin,eins og allir vita.
Kristján Blöndal

Slappir í Tölvuvirkni

Fyrir einu og hálfu ári síðan keypti ég tölvu í Tölvuvirkni sem ég hef átt í nokkrum vandræðum með frá fyrsta degi. Ég hef farið með tölvuna 2x til þeirra en sama vandamálið er enn til staðar. Tölvan er enn í ábyrgð en þar sem að hún er vinnutækið mitt þá má ég ekki missa hana nema í stutta stund í senn. Því ákvað ég að hringja í Tölvuvirkni í vikunni að leita upplýsinga til tæknimanna, í þeirri von að þeir gætu gefið mér upplýsingar um hvernig ég ætti að straujað tölvuna. Mér var tjáð að þær upplýsingar sem ég leitaðist eftir yrðu aðeins uppgefnar, gegn þóknun, ef ég kæmi á staðinn með tölvuna. Löglegt en siðlaust? Og til að toppa þjónustuna, þá skellti starfsmaðurinn á mig þegar ég lýsti undrun minni á því að rukkað yrði fyrir slíkar upplýsingar (enda tölvan í ábyrgð).
Sigríður

Metal og Guðmundur Arason góðir

Mig langar að nefna góða þjónustu sem ég fékk nú á dögunum. Mig vantaði lagnahluti úr ryðfríu stáli og eftir að hinir ýmsu seljendur höfðu sent mig bæinn þveran og endilangan hafnaði ég hjá fyrirtækinu Metal í Suðurhrauni, Gb. Þar á bæ var mér tekið tveim höndum, leyst úr öllu því sem mig vanhagaði um og þegar ég nefndi afslátt var það auðsótt mál, auk þess sem þeir hlutir sem ég keypti voru á sanngjörnu verði. Ég var ánægður með þessi viðskipti og lét vita af því þegar ég kvaddi.
Í leiðinni vil ég nefna fyrirtækið Guðmund Arason ehf., í Skútuvogi, sem selur smíðajárn ofl. Ég hef átt viðskipti við það fyrirtæki til margra ára, þó í smáum stíl sé og hef aldrei mætt þar öðru en góðu. Þar virðast allir viðskiptavinir, stórir sem smáir vera lagðir að jöfnu með fyrirtaks afgreiðslu og þjónustulipurð.
Gunnar Th.Þ

Skuldfærslugjald

Sælar hagsýnu húsmæður.
Ég var að sjá greiðsluseðil frá Mastercard.
Þar er skuldfærslugjald upp á 120 kr.
Það er hægt að gefa þessu ýmis nöfn t.d. seðilgjald en það er bannað.
Af hverju má í dag kalla það skuldfærslugjald?
Hagsýnn húsbóndi

Nefskattur Rúv

Ég var að gera skattaskýrsluna og þá brá mér. Við erum 4 í heimili sem borgum skatta. Við þurfum hvert okkar að greiða 17.100 kr í gjald fyrir útvarpið.
Þetta gerir í heildina 68.400 kr.
Ég var áður að greiðs fyrir heimilið ca. 2.900 kr á mánuði sem gerir 34.800 kr á ári.
Þetta gerir 96,55% hækkun á heimilið okkar. Ef þetta er ekki okur þá veit ég ekki hvað er hægt að kalla þetta.
Sonur minn er í námi í Svíþjóð og ég vona að hann sé ekki líka að greiða þetta afnotagjald.
Börnin mín sem eru rukkuð fyrir þetta án þess að spyrja þau, þau hlusta aldrei á útvarpið hjá Rúv.
Þau horfa nánast ekkert á sjónvarpið og ef þau gera það þá er það á tækið sem er í stofu heimilisins. Semsagt tæki sem öll fjölskylda á. Við erum ekki með sjónvarpstæki í öllum herbergjum. Kannski fara þau gjöld sem þau greiða í að greiða af bílnum hans Páls. Það á ekki að bitna á mínum börnum þó Páll fái bíl til afnota.
Hvernig dettur mönnum í hug að hækka álögur á dæmigerða fjölskyldu svona og það á þessum slæmu tímum. Eru menn ekki með öllum mjalla?
Hagýnn húsbóndi

Blu-ray spilarar í Sony center

Ég fór í Sony Center í Kringlunni í gær til að spyrjast fyrir um Blu-Ray (High definition DVD) spilara. Sá spilari (týpa BDP-S550) sem ég hafði mestan augastað á var ekki til hjá þeim en afgreiðslumaðurinn sagði að það væri mögleiki að panta hann inn. Ég spurði hvað hann mundi koma til með að kosta og þá var svarið: 149.900 kr. Á heimasíðu Sony Centers (www.sonycenter.is) eru engar verð- eða vöruupplýsingar en í staðinn er maður fluttur yfir á alþjóðlega Sony síðu, www.sony.co.uk. Þar eru upplýsingar um spilarann og verð skráð: 319 pund. Á núverandi gengi (28.03.09) svarar það til ca. 54.550 kr. Það væri fróðlegt að vita hvernig þessar viðbótar nærri 100.000 kr. sem Sony Center leggur á spilarann eru tilkomnar??? Ítreka einnig að þetta verð, 319 pund, er fengið á síðu sem þeir sjálfir vísa á!
Kv. Axel Ólafur Smith

Hjartaheill söfnunin

Mig langaði bara að senda þér línu eftir að ég hringdi styrktarsímtal til hjartaheillar í kvöld. Símsvarinn sagði þá: Bíddu í 4 sekúndur eftir að hljóðmerkið heyrist og þá verður gjaldfært 3000 kr á símreikninginn þinn AUK 79 kr. ÞJÓNUSTUGJALDS til Símans.
Hvað er í gangi? Söfnun í gangi og auðvitað sér Síminn það sem auðgunartækifæri
Ég var svolítið fúl þegar ég heyrði að ég hefði verið að gefa 79 kr til Símans. Eins og þeir séu ekki að okra nógu mikið á manni nú þegar..
Lilja G

Við eigum lífeyrissjóðina

Ég hvet alla til að skrifa undir þetta:

http://okkarsjodir.is/

Jónbjörg

Myglað á Ruby Tuesday

Verð bara að segja frá ferð minni á Ruby Tuesday í skipholti í dag. Ég og kærastinn minn fórum út að borða á Ruby Tuesday. Ég pantaði mér Fajitas með kjúklingi. Þegar maturinn kom á borðið leit þetta mjög vel út. Fajitas kökurnar voru rúllaðiar inn í smjörpappír. Þegar ég rúllaði út kökunum kom í ljós að þær voru myglaðar! myglaðar! oj barasta. Við kölluðum á þjóninn sem kom nú eftir svolítin tíma. Ég sýndi honum kökurnar og sagði honum að þetta væri myglað! "já, ég kem með nýjar" sagði hann mjög snaggaralega eins og ekkert væri eðlilegra, kom með nýjar kökur og sagði eitt lítið "afsakið" og fór í burtu. Ég var hálf hneyksluð yfir því hvað honum fannst þetta lítið mál. Hinar kökurnar voru reyndar ekki myglaðar og ég borðaði hluta af matnum. Þegar við vorum að fara bjóst ég nú við að við myndum nú vera beðin almenninlega afsökunnar og amk fá afslátt (finnst reyndar að ég ætti ekki að þurfa að borga fyrir matinn). En nei, við borguðum yfir sjö þúsund krónur og engin frekari afsökunarbeiðni. Ég var bara orðlaus og sagði ekki neitt, sé eftir því núna.
Manni finnst að maður ætti að geta treyst því að geta fengið nokkurn vegin fengið ferskan og óskemmdan mat á veitingastöðum.Ég fer allavegana ekki aftur á Ruby Tuesday.
Bjarnheiður

föstudagur, 27. mars 2009

Krónan í Mosó er klósett vikunnar á atlisteinn.is

Krónan í Mosó er klósett vikunnar á atlisteinn.is. Sjá hér.

fimmtudagur, 26. mars 2009

Ekki versla í Babysam!

Ég keypti kerrupoka hjá Baby Sam fyrir ári síðan. Var úti í frosti með pokann fyrir norðan um daginn og þá kom fram olía meðfram saumunum á pokanum. Pokinn er ljós á litinn þannig að þessir blettir eru MJÖG áberandi og svo er náttúrulega olíulykt af honum. Ég hafði samband við þá og sagði afgreiðslukonan að þetta væri olía úr saumavélinni og bauðst til að gefa mér smá afslátt og sögðu svo að þetta myndi fara í þvotti. Ég vildi nú frekar fá nýjan en sagði hún að þeir ættu þessa tegund ekki lengur til og þeir sem væru til væru ekki eins góðir og þessi. Þannig að ég auðvitað þvoði pokann og olíublettirnir versnuðu við það!!!!
Ég hafði aftur samband við verslunarstjóra Baby Sam og hann bauð mér að skila pokanum og fá endurgreitt. Ég sagði að það gagnaðist mér ekki neitt því í einhverju þyrfti barnið að sofa og vildi fá annan sambærilegan poka í staðinn (svona pokar náttúrulega búnir að margfaldast í verði síðan ég keypti hann). Verslunarstjórinn þvertók fyrir það þar sem hann sagðist bara vera með mun dýrari poka til sölu en þennan sem ég keypti (eðlilega þar sem pokinn var keyptur fyrir bankahrunið og myndi þessi sami poki vera mun dýrari í dag). Þannig að ég sit uppi með gallaða vöru sem ég fæ ekki bætt þar sem ég ætla ekki að fara að punga út haug af peningum til að fá annan kerrupoka fyrir barnið mitt. Þetta kallar maður sannarlega að gera vel við kúnnann eða hitt þó heldur!!!! Vildi að ég hefði vitað fyrr hversu þjónustulundað fyrirtæki Baby Sam er því þá væri ég ekki búin að versla við á vel yfir annað hundrað þúsund síðan guttinn fæddist fyrir ári síðan!!!
Ég hef heyrt að öllum líki rosa vel að versla við BabySam þangað til að þeir lendi í veseni eins og að þurfa að skila gallaðri vöru. Ég var að tala við Neytendasamtökin og það eiga allir rétt á að fá vöruna viðgerða eða nýja sambærilega vöru, þá er verið að tala um sambærilega í gæðum ekki verði. En það er rosalega erfitt að segja hvað er sambærilegt og sanna það. Afgreiðslukonan í BabySam sagði að minn kerrupoki væri mun betri en þeir pokar sem þeir eru með í sölu núna en verslunarstjórinn segir öfugt!!!! Og ef ekki er til neitt sambærilegt (sem mjög erfitt er að meta) þá á maður rétt á endurgreiðslu........ Konan sem ég talaði við hjá Neytendasamtökunum fannst þetta vera MJÖG lélegt hjá BabySam!!
Kv. ein ósátt við mjög lélega þjónustu......

miðvikudagur, 25. mars 2009

Skástu verðin í Elko

Ég og unnusta mín höfum verið að þræða raftækjaverslanir hérna á landinu til þess að finna bestu "fermingartilboðin" í hverri verslun fyrir sig og ákváðum að gefa ungum frænda okkar 32" flatskjársjónvarp svo hann hætti að einoka stofuna undir ps2 tölvuna sína.
Það sem okkur finnst ótrúlegast er að eini staðurinn sem ekki er beint með fermingartilboð (þ.e.a.s) Elko, eru samt 10-35% ódýrari heldur en allar aðrar verslanir sem selja sjónvarpstæki á landinu. Það sem okkur finnst líka skrýtið er það hatur sem virðist vera frá öðrum búðum á þessa einu alvöru lágvöruverslun í raftækjum á Íslandi. Fórum í eina ónefnda búð miðsvæðis í reykjavík að skoða sjónvarpstæki frá Philips. Allt lofaði mjög góðu, tækið hafði átt að kosta 189 þúsund krónur, en var á frábæru tilboði á 150 þúsund. Starfsmaður í umræddri verslun sagði okkur eftir að við spurðum hann hvort aðrir væru að selja þetta tæki, að Elko hefði verið að selja þetta, en ættu aldrei neinar vörur til sökum þess að þeir væru að fara á hausinn, starfsfólk þar væri ókurteist, og þeir gætu aldrei boðið okkur sambærilegt tæki á sama verði. Þar sem ég kannast nú við strák í Elko í skeifunni ákvað ég að kíkka þangað, og mér til undrunar var þar sama tæki, ekki á neinu tilboði og á því verði sem það hafði alltaf verið á, á tæpar 135 þúsund kr.
Skiljanlegt í dag þar sem samkeppnin er mikil við að halda lífi í svona búðum að það sé einhver kuldi á milli samkeppnisaðila, en lygi og rógburður er nú yfirleitt ekki góð forsenda fyrir því að beina viðskiptum til sinnar búðar.
Óðinn

FireWire snúra

Mig vantaði FireWire snúru og ákvað því að gera smá verðkönnun.
Ég byrjaði á heimasíðu Elko þar sem ég bý rétt hjá þeim.
Snúran góða kostar þar frá 1.995-3.495 en hjá Computer.is (Tæknibær) kostar sambærileg snúra 900 kr.
Elko er náttúrulega með verðvernd og lofar því að endurgreiða muninn og 10% í viðbót þannig að á endanum ætti snúran að vera ódýrari í Elko, spurning hversu margir nýta sér þessa verðvernd.
Kv.
Nökkvi S

Langar að benda á móðgun á KFC

Málið er að við fórum þangað og keyptum fyrir yfir 3000 kallinn mat
og svo spyr stúlkan okkur hvort við viljum krydd með frönskunum ?
(keyptum stærsta franskarskammtinn)..
Já auðvitað segjum við,,þá segir stelpan:já það kostar!!! ha!!!
Kostar kryddið?????
Ofan á 3000 kallinn að fara að borga fyrir kryddið sem þú lætur á
franskarnar er bara algjört bull.
Við hættum við og spurðum ekki einu sinni hvað kryddið kostaði, þótt
þær hafi kostað 5 kall þá er þetta bara móðgun!!
kv,
Greifinn

Ostsneið í Björnsbakaríi

Fór í björnsbakarí,
bað um eina bollu með graskersfræum
skera hana og bæta við ostsneið
bollan kostar 90 krónur
þegar viðbótargjörningi var lokið, ostsneiðin komin á, þá kostaði þetta allt samtals 280 krónur.
ég spurði hvort þetta gæti staðist
já, það er vegna þess að það er vinna á bakvið þetta allt saman!
tók ca 2o sek
einmitt,
kær kv
gunni

Aldrei aftur Max raftæki

Smá punktur hérna um verslunina Max. Konan mín keypti farsíma hjá Max raftækjaverslun, samsung sími sem sölumaðurinn mælti með vegna þess að hann væri svo góður og þá sérstaklega batteríið sem henni fannst vera aðalmálið. Fyrir þennan síma greiddum við 39þús. Viku seinna sáum við það að verið var að selja þennan sama síma
annarsstaðar á 24þús og í þokkabót voru þeir símar með 3G tækninni en ekki
síminn sem við höfðum keypt. Og svona til að toppa málið var síminn hinn mesti
gallagripur, batteríið entist ekki neitt og ýmsir aðrir gallar á honum, farið var
með símann í viðgerð hjá max og að sjálfsögðu minntust við á verðið við þá en
ekkert vildu þeir gera í því en sögðust vilja láta kikja á simann sem var gert
en kom til baka í sama ástandi. Ekki vildu þeir láta okkur hafa nýjan síma
sérstaklega þar sem þeir væru hættir að selja þessa tegund (vegna vandamála
með þá?). Síminn fór aftur í viðgerð en skánaði lítið. Þegar 8 mánuðir voru
liðnir frá því síminn var keyptur var farið með hann í viðgerð aftur vegna sömu
vandamála og áður, þaðan kom hann með þeirri skýringu að það væru rakaskemmdir
í honum og það félli ekki undir ábyrgð og tjónið því okkar. Svo svona til að fá
mig til að sjá betur hvernig þessi verslun er fengum við vigt í jólagjöf, og
þegar átti að fara að baka fyrir barnaafmæli var gripið til vigtarinnar en viti
menn það bara kviknaði ekki á henni. Gripurinn tekinn upp í Max með
ábyrgðarskírteini meðferðis en nei þeir voru hættir að selja þessa tegund og
sögðust ekki bera neina ábyrgð á vörunni heldur þyrfti ég að tala við
innflytjandann, eftir mikið þref fengust þeir þó til að láta nýja vigt af hendi
en ég þurfti að borga mismuninn sem var 500kr á milli vigta. Eru þetta
verslunarhættir sem búðin er stolt af? Ég veit allavega að þarna versla ég
aldrei aftur og vara fólk við því að versla þarna!
Kveðja, Gunnbjörn Sigfússon

Dýrt gullnúmer

Ég fór um daginn til Nova og keypti símakort fyrir dóttur mína. Það var ósköp elskulegur ungur maður að afgreiða mig og hann sagði að öll símanúmer hjá Nova byrjuðu á 772.. og hvort ég vildi eitthvert sérstakt númer í lokin. Mér fannst gasalega sniðugt ef hún fengi sömu tölur í endann eins og er í númerinu hennar hjá Símanum en það er xxyy. Þá sagði þessi elskulegi maður mér að það væri kallað gullnúmer og kostaði það 6.000 kr. Mér fannst nú ansi mikið að borga aukalega 4.000 kr. fyrir nokkra tölustafi, = 1.000 kr. fyrir stykkið, 2.000 kr. fyrir parið ....
Svona fyrir minn smekk, ósvífni seljandans, sjálfsagt löglegt en þræl-siðlaust.
Með kveðju,
Matthildur Gestsdóttir

Helvítis fokkin Vodafokk

Mig langar að benda þér á þennan spjallþráð á spjallborði maclantic.is. Hann segir mest alla söguna. Netþjónustuaðilar á Íslandi bera enga virðingu fyrir viðskiptavininum vegna fákeppni:

http://maclantic.is/spjall/viewtopic.php?t=13168&postdays=0&postorder=asc&start=0


Kveðja,
Ingólfur

Ruby okur á milkshake

Ruby’s Milkshake 890 kr. (Venjulegur sjeik , í kókglasi: 0,4-0,5 L.). Okur!

þriðjudagur, 24. mars 2009

Til hvers að flytja inn mold?

Ég kom inní Húsasmiðjuna Borgarnesi um helgina. Þar er verið að selja
innflutta mold til umpottunar stofublóma. Mér finnst það alveg fáránlegt vegna
þess að við höfum framleiðanda á Flúðum Flúðamold held ég að það heiti. Í annan
stað þá höfum við að mínu mati eitthvað annað við galdeyririnn okkar að gera
þessa daganna. Smithætta?
Moldi

mánudagur, 23. mars 2009

Okur í Next

Já íslenska okrið er enn við lýði. Ég keypti náttföt á dóttur mína í Next á 2990 þegar ég tók þau upp þá sá ég að þau voru á 8 pund (útsöluverð í Bretlandi) sem er skv. gengisskráningu í dag aðeins 1600 krónur. Jafnvel ef ég margfalda með pundið 200 sem er mjög ýkt þá næ ég upp í 2.000 krónur – nei þau eru seld hér á Íslandi á 2.990. Og við felldum niður skuldir eigendanna og þau eru enn við stjórnvöl og eignarhaldið þeirra – ætla greinilega ekki að skila því tilbaka í sanngjörnu verði.
Kv,
Fjölskyldu sem blöskrar

Ekki okur: Verkfæralagerinn

Ég vildi benda fólki á Verkfæralagerinn. Það er ótrúlegt úrval þarna og verðið er neytendavænt.
Við hjónin fórum þangað til að athuga hvað klaufhamar kostaði. Við fundum einn með góðu gripi á undir 700 kr. Vinklar sem okkur vantaði kostuðu undir 190 kr. stykkið. Sömu vinklar kostuðu fyrir kreppu yfir 600 kr. í Byko. Við trúðum því ekki heldur þegar við sáum almennilegan grillbursta sem okkur hefur vantað í ár á rúmlega 300 kall.
Mæli eindregið að fólk kíki þangað ef það er í dyttingum heima fyrir og þarfnast góðra vara á góðu verði.
Heiða Hrönn

laugardagur, 21. mars 2009

Stöð 2 fær ekki háa þjónustueinkunn

Ég á ekki til orð yfir frekju og yfirgangi hjá Stöð 2.
Sagan er að ég bjó hjá systur minni í smá tíma meðan ég var að klára að byggja. Meðan ég bjó hjá henni borgaði ég áskrift af stöð 2 og lét taka af kreditkortinu mínu mánaðarlega. Í janúar flutti ég í nýja húsið, lét flytja áskriftina þangað og hætti að borga hjá systur minni. Í febrúar er tekið af kortinu mínu 3x fyrir áskrift á stöð 2, ég hringi til að vita hvað er í gangi og þá kemur í ljós að þetta er gjaldf fyrir mig og systur mína. Ég bað um að þetta yrði lagfært, ekkert mál var svarið. Svo núna í mars er aftur tekið af kortinu mínu en bara 2x. Ég hringi aftur og vil fá endurgreiðslu. Svarið sem ég fékk var að systir mín er að misnota kortið mitt og ég ætti að rukka hana um þessa upphæð!!!!!! Þegar systir mín fær sér aftur stöð 2 og gefur upp kennitölu sína, þá er spurt á að gjaldfæra á kortið sem er skráð á þessa kennitölu og hún segir að sjálfsögðu já, vissi að ég var búin að flytja mig og hélt að kortið sitt væri skráð. Þarna vilja þau á stöð 2 meina að systir mín væri að misnota kortið mitt. Halló ég var búin að láta taka það og setja á mitt heimilisfang. Þá segir þessi Hrönn hjá Stöð 2 að þau geti ekki í hvert skipti tékkað hver á kortið! Það er skylda þeirra að rétt kort sé notað með réttri kennitölu. Ég gaf aldrei leyfi fyrir þessum úttektum á kortið mitt. Ég hafði samband við þá hjá Borgun og eru verið að vinna í að fá endurgreitt. En þau hjá Stöð 2 fá ekki háa einkunn fyrir þjónustu.
Thordís

Kókrugl í Krónunni

Í dag (20.mars 09) er auglýst tilboð á kóki í Krónunni á 599 kr (4x2l kippa). Hljómar vel þar til að maður sér verðmerkingu í hillu á kókinu 129 kr. 2l stk.
Ef ég kaupi 4 stakar 2l kók kostar það því 516 kr. Frábært tilboð þar á ferðinni. Ég benti afgreiðslustúlkunni á þennan mun og bað hana að sannreyna þetta, hún gerði það og sagði „já við vitum af þessu“ og brosti voða fallega þegar ég spurði. Ekki skánaði þetta þegar ég borgaði því þá virtist merkta verðið lækka (væntanlega þar sem ég keypti 6 stk í kippu), þá var stykkjaverðið komið í 124 kr. Kvarta svo sem ekki yfir því, en hefði viljað sjá vöruna merkta með réttu verði, því það er líklega sjaldgæfara að varan lækki óvart í verði en hækki.

150 kr. Tilboðsverð 2l kók
129 kr. Venjulegt merkt verð í hillu 2l kók
124 kr. Verð á kassa fyrir venjulega kókið.

Ég hef oft tekið eftir því að verð á kassa passar ekki við merkt verð í hillu og að tilboðin eru stundum hreint engin tilboð heldur furðuleg leið til að koma vörum út.
Erum við nógu vakandi fyrir blekkingum sem þessum?
Kv, Sigrún

Baukaokrið enn í gangi

Ég heiti Hanna og er með tvö börn á mínu framfæri. Ég eins og margir foreldrar er að reyna að kenna börnunum að spara. Einn liður í því er að safna í bauk og fara svo með hann í bankann til þess að leggja innihald bauksins inn á bók. Flestir barnareikningar eru þannig að þau fá verðlaun fyrir að koma með baukinn í bankann og í Landsbankanum fá þau að velja Sprota dót. Í dag fór ég með stelpuna mína í bankann, en hún var búin að fylla baukinn sinn. Mér var sagt að ég yrði að láta telja peningana úr bauknum í vél sem stæði frammi í bankanum. Það var gert. Það sem ég er aftur á móti ekki sátt við er að bankinn tekur 3% fyrir þetta. Stúlkan mín sem er þriggja ára borgaði því kr. 202 fyrir að fá að borga peningana í bankann. Hún var í raun að tapa kr. 202 á því að fara með baukinn í bankann.
Ég vildi bara koma þessu á framfæri þar sem að ég myndi ekki mæla með þessari sparnaðarleið og þjónustu.
Kveðja, Hanna Gísladóttir

Sparaði 30.000 með að versla ekki við Heklu

Ég þurfti að fara með bílinn minn (Skoda Oktavia 2005) í bremsuviðgerð. og fór í Heklu umboðið í Reykjanesbæ. þar átti viðgerðin að kosta 57.000.- með varahlutum. Klossarnir áttu að kossta 16.000. og 20.000 setin að framan og aftan. Þar sem mér blöskraðið uppsett verð þá hringdi ég í nokkrar varahlutaverslanir og endaði á því að fá klossa frá N1 á 7.900 og frá Max 1 á 5.300 þeir hjá Max1 settu klossana í fyrir 13.500. Endaði því viðgerðin í u.þ.b 27.000 kr. Ég sparaði því 30.000.- á því að hringja 5 símtöl og versla ekki við Heklu.
Kveðja
Hilmar Örn

Páskaeggjaokur

Ég kom til landsins á síðasta fimmtudag og keypti páskaegg nr. 4 frá Nóa Síríusi á 1149 kr. stykkið í fríhöfninni. Í dag sá ég egg af sömu stærð frá sama framleiðanda í Bónus á 919 kr. stykkið. Ekki er allt sem sýnist í fríhöfninni.
Kveðja, Inga

Nefúðaokur á Reyðarfirði

Verð á Otrivin nefúðalyfi kr. 554,- hjá Lyf & heilsu á Hvolsvelli þann
9.3. sl. - Sama lyf keypt hjá Lyfju á Reyðarfirði þann 17. 2. sl. kr.
830,- Okur!
Gunnar Geir Kristjánsson

föstudagur, 20. mars 2009

Viðskiptavinir Midi,is neyddir til að prenta út auglýsingar

Ég var rétt í þessu að kaupa 9 bíómiða í Smárabíó sem kosta litlar 9450 kr. Ég keypti miðana a midi.is til að spara mér tíma og fyrirhöfn. Þegar kom að því að prenta út miðana kemur í ljós að með miðanum (sem er lítill og nettur) fylgir auglýsing í litum frá 101 Hótel sem fyllir út síðuna (pdf.skjal og því engin leið að breyta því). Ég verð að segja að mér brá við þetta. Annars vegar vegna þess að ég var um það bil að fara að prenta út níu síður af auglýsingu í lit vegna þjónustu sem ég kem líklega seint til að nýta mér og hins vegar vegna þess að þarna var komin auka tilkostnaður fyrir mitt fyrirtæki vegna auglýsingar sem smárabíó er að fá greitt fyrir að birta. Ég hringdi í Midi.is og bað um að fá miðana senda án auglýsingar og var mér þá sagt að það væri tæknilega ómögulegt. Mér var bent á að senda formlega kvörtun til fyrirtækisins.
Í stað þess að senda formlega kvörtun á midi.is sem ég veit að ekki verður unnið úr, ákvað ég að senda þessar upplýsingar á þig með von um að þú birtir þær og eitthvað verði gert í þessu.
Ég geri mér grein fyrir að í augnablikinu er ég mjög pirruð út í fyrirtækið. Mín réttlætistilfinning segir mér þó að þarna sé verið að brjóta á mér sem neytanda og verið að þvinga mig til að greiða fyrir eitthvað sem ég bað alls ekki um.
Kær kveðja, Helga Björg Axelsdóttir

Vitlaus merkt debetkort

Þrír úr fjölskyldunni fengu send ný debetkort í vikunni þar sem gömlu kortin eru að renna út. Það sem kom okkur á óvart var að nýju kortin sem hafa gildistíma til 2011 eru merkt Glitni. Við vitum ekki betur en að Glitnir sé óstarfhæft fyrirtæki sem hefur verið lagt niður. Þar sem við kærum okkur ekki um að nota kort frá slíku fyrirtæki, svo ég tali nú ekki um hversu óeðlilegt það er að bjóða viðskiptavinum upp á þetta, fórum við í Íslandsbanka og báðum um ný kort merkt þeim.
Það voru einhver vandkvæði á því, en þó var það hægt gegn gjaldi upp á eitt þúsund krónur fyrir hvert kort.
Sem sagt þrjú þúsund krónur fyrir þrjú kort.
Maður spyr sig, hvaða bull er hér í gangi ?
Íslandsbanki hefur undanfarið verið með mikla auglýsingaherferð þar sem góð ímynd og trúverðuleiki fyrirtækisins er í öndvegi.
Dæmi hver fyrir sig.
Vona að þessu verði komið á framfæri.
Bestu kveðjur,
Ásgeir

Guðrún blæs út um okurástandið í yndislega landinu

Góðan daginn, ég er nánast orðin orlaus á þessu okurástandi á þessu
líka yndislega landi.
Heildsölurnar og búðirnar eru að kafna úr græðgi og mér finnst alveg
vera komin tími til að það verði sett þak á álagningu. Og stofnuð
verði enn ein nefndin til að fylgjast með.
Ég veit að það er frjáls álagning sem er jú kannski alveg í lagi ef að
fólk misnotar hana ekki og fer upp í og yfir 700% álagningu.
Ikea var að gorta sig á að halda verðinu hér á landi óbreyttu í haust
og fengu plús fyrir það, svo neyddust þeir til að hækka allt sem jú
maður skilur alveg vegna gengisbullsins, en boy o boy af hverju eru
þeir ekki byrjaðir að lækka vörurnar núna, þessi búð er orðin alveg
gubb dýr og við ættum að sniðganga hana þangað til að þeir sjái sóma
sinn í að byrja að lækka. Maður gat farið og keypt nokkra smáhluti til
að lífga upp á heimilið fyrir lítinn pening, en í dag kostar það
hálfann handlegginn og nokkra putta. Þetta er bara Ikea ekki ILVA eða
Húsgagnahöllin.
Svo er það Cosmo, sem heldur áfram að hækka vörur hjá sér þrátt fyrir
gengislækkunina. Ég sá kjól þarna í lok febrúar sem kostaði 16.900 og
svo kom ný sending í byrjun mars og sami kjóll hafði hækkaði um 2.000
þetta er ekki eðlilegt.....mikill vill alltaf meira og
verslunareigendur eru hreinlega að kafna úr græðgi. Ég vill beda öllum
þeim sem eru að versla við Cosmo að kynna sér vöruúrvalið hjá Kiss
( sem er nú ekki þekkt fyrir að vera ódýr) og svo eins í Kóda í
Keflavík því það getur munað allt að 100%, 200%, 300% og meira af sömu
vörum á milli þessara verslana samt eru þessar búðir með góða
álagningu á vörunum. Við verðum að vera vakandi og sniðganga þessar
búðir sem eru í bullinu og ætla að halda áfram í því. Við erum búin að
láta bjóða okkur upp á svínslega álagningu í nokkuð mörg ár en nú er
nóg komið. Fólk ættu að hópa sig saman og skella sér til Keflavíkur
eða upp á Skafa því það er engin smá munur á verðlaginu á nákvæmlega
sömu vörunum og hérna í bænum. Það má gera sér glaðan dag og fara í
verslunarferð til nærliggjandi kaupstaða ;)
Þegar að góðærið var þá var bara allt keypt fyrir uppsett verð þó svo
að það væri komið upp úr öllu góðu hófi, hva það var góðæri þetta var
hugsunarhátturinn og kannski ekki skrítið að ástandið sé svona í dag ;)
Þessi gengishækkun á alveg pottþétt ekki eftir að skila sér til baka
nema að hluta til frekar en hérna um árið þegar að dollarinn fór upp í
110 kr og allt hækkaði en það lækkaði bara hluti af vörunum aftur.
Nema að við neytendurnir verðum vakandi og hættum að láta bjóða okkur
upp á svona græðgisbull. Þetta er eins og með Olíufélögin þau hækka
allt um leið og gengið hækkar en svo bara tekur það heila eilíf að
lækka það aftur þegar að allt fer niður og þá bara segja þeir að þeir
hafi ekki hækkað álagniguna svo lengi að það sé ástæðan bull og
helv...vitleysa.
Ég fór með syni mínum í Smash um daginn og honum langar svo í Carhartt
buxur sem kosta í dag 17.900. þær kostuðu 12.900.- ( sem mér finnst nú
bara vera alveg nóg ) fyrir hrun svo hækkuðu þær upp í byrjun upp í
13.900 og svo í haust skutust þær upp í 17.900. Drengurinn vildi
hermannalit sem var ekki til í hans stærð e það voru til aðrir litir í
hans stærð sá sem okkur afgreiddi sagði að það væri von á nýrri
sendingu eftir 2 vikur og ég ok glæsilegt. En svo bætti hann við og
sagði að maður veit aldrei þær gætu nú alveg hækkað eitthvað og ég
bara af hverju ætti það að gerast og hann yppti bara öxlum. Ég sagði
honum að það væri ekki skiljanlegt ef að þær myndu hækka þar sem
danska krónan hefði nú lækkað töluvert, svo kom annar sem var að
afgreiða þarna líka og ég spurði hann getur verið að buxurnar hækki
þegar að þær koma næst og hann nei það eru svona 99.9% að það gerist
ekki. Og þá saðgi ég þær ættu í rauninni að lækka miðað við að gengið
er nú búið að vera á niðurleið en auðvitað myndu þau ekki lækka vöruna
aftur, þar sem þetta er hátískuvara og krakkarnir vilja þetta og
versla og auðvitað nýta þau sér það. Ég sá í sömu búð Vans skó sem
kostuðu 12.900 og ég sagði ertu ekki að djóka í mér með verðið á
þessum og hann alveg nei. Ég bara missti andlitið því ég fór til USA í
haust og þá var gengið á dollaranum 130 já 130 og ég verslaði 4 pör af
Vans skóm á 10.400 halló þetta er ekki alveg í lagi. Það er ein sem ég
þekki sem er með búð í Kringlunni og hún á ekki til orð yfir þessu
liði sem er ennþá að selja á okurgengi þrátt fyrir nýjar sendingar á
lægra gengi, hún sagði mér einmitt að þegar að allt fór upp þá hefðu
búðirnar bara hækkað alla línuna þrátt fyrir að eiga á lager gamlar
vörur á lágu gengi, þetta er náttúrulega bara ógeð að þetta skuli
viðgangast.
Ein saga úr Ísbúðinni í Kringlunni, ég ætlaði að bjóða syni mínum upp
á bragðaref og hann spurði hvað kostar lítill bragðarefur og þá sagði
stúlkan hann er á tilboði núna á 790 kr ef þetta er ekki okur þá veit
ég ekki hvað. Sonur minn hvíslaði að mér mamma eigum við ekki að kaupa
þetta í annari ísbúð því honum blöskraði verðið.
Svo fórum við í Vesturbæjarísbúðina þar sem risa bragðarefur kostar
það sama og sá minnsti í Kringlunni 790 kr og þá er ég að tala um risa
risa.
Verum vakandi og dugleg að skrifa hérna inn og deila því þegar að við
verðum uppvís af svona okurbulli og eins þegar að búðir eru að gera
góða hluti eins og að lækka vöruverð. Þá getum við sniðgengið þær
búðir sem ætla að halda sig í bullinu og valið að versla í hinum sem
eru að gera góða hluti.
Svo ég haldi nú áfram þá var sonur minn að koma frá Englandi og þið
vitið nú að gengið er hátt þar í landi. Hann keypti sér G-star Raw
buxur sem kostuðu þar tæplega 14.000 sömu buxur kosta rúmlega 24.000
hérna heima, hvernig er hægt að útskýra þennan verðmun. Hann fór í
Karen Millen og var að ath með kápu sem ég var að spá í ok hún kostar
rúmlega 47.000 hérna heima en nota bene 32.000 þarna úti og þetta er
ekki heildsala heldur smásala. Það er eins og ég segi ég veit ekki
hvernig þessir eigendur hafa samvisku í að taka okkur samlanda sína í
ósmurt r********.
Ég gæti haldið endalaust áfram.......en stoppa nú ;)
Kveðja,
Guðrún

Dýr ferð til Kanaríeyja

Mig langar að segja smá ferðasögu.
Móðir mín sem er 85 ára gömul fer á hverju ári með vinkonum sínum til Kanaríeyja og dvelur þar í 6 vikur.
Í janúar 2008 fóru þær með Heimsferðum, dvöldu í litlum húsum og líkaði mjög vel. Ákváðu þær að endurtaka leikinn og fóru núna í janúar 2009 nákvæmlega eins ferð, en dvölu tveim dögum skemur.
Í jan. 2008 borguðu þær u.þ.b. 150 þúsund krónur fyrir ferðina á mann, en núna 2009 greiddu þær u.þ.b. 350 þúsund.
Þetta finnst mér mjög mikil hækkun, en þær borguð það sem upp var sett, ástandið í þjóðfélaginu var jú mjög einkennilegt.
Þær ræddu þetta við félaga sín þegar út var komið og enginn hafiði lent í slíkri hækkun.
Ég talaði við ferðaskrifstofuna sem kom með einhverjar staðlaðar skýringar á ýmsum hækkunum.
Síðan var haft samband við neytendasamtökin. Þeir sögðu okkur að ekkert væri hægt að gera eftir að búið væri að greiða ferð, það væri frjáls samkeppni og ferðaskrifstofan gæti í sjálfu sér sett upp hvaða verð sem er.
Hins vegar bentu þeir á að fólk þyrfti að skoða vandlega verð áður en greitt væri til að lenda ekki í sömu málum og móðir mín.
Við erum mjög ósátt við framkomu Heimsferða og höfum á tilfinningunni að verið sé vísvitandi að plata gamalt fólk. Ég vil benda fólki á að skoða öll verð vandlega áður en greitt er eins og neytendasömtökin bentu okkur á og gera samanburð.
Kær kveðja,
Ragnheiður Gunnarsdóttir

Gjafakort Kringlunnar

Vil koma á framfæri óánægju mína með gjafakort Kringlunnar.
Gjafakortin eru í formi debetkorts og gilda í allar búðir Kringlunnar. Stóri ókosturinn við þessi kort er sá að ekki er hægt að greiða upp í vörur ef innistæða kortsins er ekki næg fyrir viðkomandi innkaupum. Sem dæmi má nefna ef þú ætlar að kaupa þér skyrtu fyrir 5000 kr en átti bara 4500 kr inn á kortinu þá geturu ekki greitt með kortinu heldur verður að gjöra svo vel að finna þér skyrtu fyrir 4500 kr. Efast ég um að allir sem hafi átt gjafakort hafi náð að versla í Kringlunni fyrir nákvæmlega þá upphæð sem inn á kortinu er. Án efa liggja því víða margar ónotaðar krónur á þessum kortum sem Kringlan er að fá í vasann.
Einnig ef þú átt tvö eða fleiri gjafakort og vilt fá að sameina þau kostar það heilar 500 kr. per kort.
Með betri kveðjum,
Vala

Löður þvottastöðvar - Þreytt vara þrátt fyrir að vera með tiltölulega nýjar stöðvar!

Svona yfir vetrarmánuðina þegar að þrífa þarf bílinn nokkuð oft að utan hefur maður ekki marga staði að leita til ef ekki er bílskúr til afnota. Því leitar maður til Löðurs. Ekki gæðanna vegna heldur er maður eiginlega tilneiddur. Flestar bensínstöðvarnar sem bjóða upp á sjálvirkar þvottastöðvar eru með þreyttan búnað sem skemmir lakkið á bílunum því forðast maður þær alveg.
Ég hef farið með bílinn í snertilausu stöðina hjá Löðri. Í boði eru 3 möguleikar, brons, silfur og gull sem kosta kr. 1.600, kr. 1.800 og kr. 2.100. Dýrasti möguleikinn er með það sem á að kallast tjöruhreinsi! Tjöruhreinsi sem virkar engan veginn, alveg sama á hvernig það er litið. Ég hef prufað það. Í fyrsta skiptið sem ég prufaði svona stöð kom bíllinn aðeins hreinni út en engan veginn í samræmi við það sem maður borgaði og bjóst við að fá. Ég talaði við framkvæmdastjórann sem bauð mér að fara aftur í gegn, sem ég gerði. Engin breyting varð frá fyrri þvotti því miður. Sama drulluskýjið lá yfir sérstaklega neðri hluta bílsins.
Það sem maður verður að gera ef maður ætlar að nota þessar stöðvar er að byrja á að kaupa tjöruhreinsi á næstu bensínstöð fyrir frá kr. 800 (virkar ekki alveg nógu vel, sjálfsagt það sama og Löður notar?) upp í kr. 1.500 sem virkar best að mér finnst, og úða yfir bílinn áður en maður fer svo í þvottinn með lélegu efnunum sem Löður notar og selur dýrum dómum. Einkennilegt ekki satt að þurfa forþrífa bílinn fyrir þvott! Þegar upp er staðið þá kostar þessi þvottur um kr. 3.600. Ekki kreppuverð þetta.
Það sem ég er að fara með þessu er að ef Löður ætlar að rukka þessa sæmilegu upphæð fyrir lélega "vöru" eða "þjónustu", þá er það frumskilyrði að þeir bjóði upp á góð efni og uppskeri ánægða viðskiptavini ÁN ÞESS að hækka þjónustuna meira en þeir hafa gert. Nógu dýrt er þetta fyrir. Það eru ekki allir sem vilja fara með bílana í gegnum burstaþvottinn og þarf að taka tillit til þess ef þeir eru á annað borð að bjóða upp á það.
Friðleifur

Tal og vanskilaskráin

Eftir að hafa fengið enn einn okurreikninginn frá Símanum ákvað ég að færa mig yfir til Tals. Ég skráði nafn og símanúmer á síðuna hjá þeim og fékk sölusímtal næsta dag. Þegar strákurinn í símanum hafði þulið upp hversu mikið allt heila klabbið kostaði var ég ekki lengi að samþykkja, enda mun betri skilmálar en hjá Símanum - hélt ég.
Í dag, þegar átti að fara að sækja nýjan beini til Tals, var mér svo tjáð að þar sem ég væri á vanskilaskrá þyrfti ég að reiða fram 40.000 krónur í tryggingagjald. Afsakið, þarna átti að sjálfsögðu að standa fjörutíuþúsundfokkingkrónur!
Hefði ekki verið hægt að minnast á þetta smáatriði áður en ég tók strætó niður á Suðurlandsbraut til að ná í stykkið?
Þegar ég svo hringdi og kvartaði voru svörin ósköp ámátleg: "æ, hann hefur bara gleymt að minnast á þetta"!
Í skilmálum Tals kemur reyndar fram að þeir áskilji sér rétt til að einnheimta tryggingagjald - en fjörutíuþúsundkall? Ég gekk auðvitað beinustu leið út og neyðist líklega til að láta Símann ræna mig áfram, því ekki er hægt að vera alveg síma- og netlaus.
Tinna G. Gígja

fimmtudagur, 19. mars 2009

Villandi okur Símans

Eftir að hafa heyrt auglýsingar Símans um sex vini óháð kerfi skráði ég mig á heimasíðu Símans og óskaði eftir símhringingu varðandi slíkt tilboð.
Daginn eftir hringdi í mig sölumaður frá Símanum sem spurði mig hvort ég hefði ekki óskað eftir tilboði. Ég spurði hann hvort þetta væri rétt með að þeir væru að bjóða upp á sex vini óháð kerfi.
Hann sagði svo vera, að þar væri mánaðagjaldið 1.990 kr. og þá sagðist ég vera tilbúinn að skrá mig í þá þjónustu. Nokkrum dögum seinna fékk ég nýtt kort frá Símanum og var þar með laus undan okri Vodafone.
Því kom mér mjög á óvart að lesa í DV að þessi leið, sex vinir óháð kerfi væri þannig að aðeins væru innifaldar 1.000 mínútur á mánuði + 500 SMS. Ég skoðaði heimasíðu Símans nánar og komst að því að það væri rétt.
Þarna tel ég að um mjög villandi auglýsingu sé að ræða sem og söluaðferðir sem eru Símanum til vansa. Fyrirtækið getur snúið útúr þessu á hvern hátt sem það vill en ef það vill vinna sér inn traust viðskiptavina ætti það frekar að birta gegnsæja verðskrá á vefnum sínum heldur en að blekkja fólk undir frasanum "aðgerðaráætlun fyrir heimilin".
Daði

Ótextaðar dvd jafn dýrar og textaðar - hvers vegna?!

Það er mikið og verðskuldað æpt og grátið út af verðlagningu á matvörum og þess háttar sem telst til nauðsynjavöru. Það er því kannski ástæða fyrir því að sumt sem ekki telst til nauðsynja sigli lygnan sjó eða sé jafnvel í kafi þegar þess háttar umræðu ber á góma.
Eitt slíkt eru DVD myndir, textaðar og ótextaðar. Textun er að sjálfsögðu kostnaður sem leggst á verð DVD myndar. Það eru samt margir sem kjósa að horfa frekar á ótextaðar myndir.
En hvers vegna í andsk. eru þær þá jafnDÝRAR og textaðar? Þær ættu að sjálfsögðu að vera töluvert ódýrari. Þetta finnst mér bæði vera okur og þjófnaður og fróðlegt er að vita hvernig framleiðendur fara að því að réttlæta þetta fyrirkomulag.
Með kveðju,
Guðmundur Benediktsson
Akranesi

Ekki okur Sushi

Vil gjarna benda SUSHI-elskendum á að allir bakkar kosta 1200 krónur hjá
Sushismiðjunni niðri við höfn (við Tryggvagötu, í litlu bláu húsunum
bakvið Búlluna. Held það séu 10-12 bitar sem er passlegt fyrir einn
svangan. Ég hef undantekningalaust fengið mjög gott sushi þarna; það eina
er að þeir loka klukkan 19:00... hef stundum verið aðeins of seinn! Mæli
sterklega með þessum bráðholla og góða mat, sushi má alveg eta í kreppunni
líka.

Bestu kveðjur,
Jónatan

p.s var að kíkja á heimasíðuna á netinu (http://www.sushismidjan.is/) og (hefur ekki verið uppfærð nýlega) og þar stendur reyndar að tilboðið sé bara mánudaga og þriðjudaga, ég er ekki klár á því hvort það er samt alla daga núna, hefur verið í
gangi þau 3 skipti sem ég hef farið nýlega, en ég man ekki hvaða vikudag
það var!

Árskortið í Hreyfingu

Ég keypti árskort í Hreyfingu í mars 2008 og hef spriklað þar til málamynda af og til. Nú er árið liðið í aldanna skaut og ég sá í hillingum að ég mundi losna við tæpan 6000 kall af vísakortinu um mánaðamótin. En nei, þá er smátt letur í samningnum og þrír mánuðir bætast við nema ég rifti samningi og greiði riftunargjald. Svo segir í bréfi frá þessum ræningjum sem mér barst í gær þegar ég tilkynnti að ég hygðist ekki endurnýja árskortið: "Samningur þinn við Hreyfingu er undirritaður: 31.03.08 til 12 mánaða og með 3 mánaða uppsagnarfrest. Binditíminn er til : 31.03.09. Berist uppsögn fyrir 14. dag mánaðar gildir hún frá 1. degi næsta mánaðar á eftir. Telst sá mánuður sá fyrsti af þrem. Uppsögn þín telst frá og með 01.04.09 og verður kortinu þínu lokað 30.06.09 (leturbr. mín). Ef þú kýst að rifta samningi þínum áður en binditíma er lokið þarf að greiða kr. 5.279,- í riftunarkostnað í síðasta lagi 17.03.09. Þá verður korti þínu lokað 31.03.09. ... Þegar gengið hefur verið frá riftun munt þú fá staðfestingu á tölvupósti frá samningar@hreyfing.is. Við viljum líka benda þér á að hægt er að framselja samninginn til annars aðila fyrir 5000 kr."

Þetta er sjálfsagt löglegt en hlýtur að flokkast undir bæði siðleysi og undarlega viðskiptahætti. Ég er náttúrulega sauður að lesa ekki samninginn almennilega en hvernig á maður að búast við svona nokkru? Er ekki eðlilefgt að árskort renni út eftir ár ef það er ekki endurnýjað? Hefði ekki verið lágmarkskurteisi við kúnnann að vekja athygli hans á þessu og benda á í tíma að segja þyrfti upp árskorti í janúar, eftir 9 mánuða gildistíma? Að árskort sé óvart rukkað í 15 mánuði? Ég veit ekki til þess að öðrum árskortum, t.d. í leikhús, þurfi að segja upp formlega. Er ekki bara verið að ræna mann og féfletta?

Bestu kveðjur,
Steinunn Inga Óttarsdóttir

Verðkönnun Hugrúnar á Metasys

Ég var að hlusta á Útvarp sögu um daginn og heyrði líka svona glimrandi frásögn af efninu Metasys, sem eru ætlað til þess að hjálpa fólki að komast í kjörþyngd, fá meiri orku og fl.
Þetta efni er til víða og viðist því vera nokkuð vinsælt. Ég ákvað því að gera verðkönnun á nokkrum stöðum og útkoman varð þessi:

Metasys (120 hylki) verð:

Lyfja: 5586 kr.

Lyfjaver: 5140 kr.

Krónan (Bíldshöfða): 4998 kr.

Hagkaup (Garðabæ): 4827 kr.

Lyf og heilsa: 4730 kr.

Krónan (Hvaleyrarbraut) : 4549 kr.

Fjarðarkaup: 4498 kr.

Eins og sjá má er umtalsverður verðmunur á hæsta og lægsta verði eða 1088 kr.
En athyglisverðast finnst mér að það sé 449 kr verðmunur á milli Krónubúðanna???
Ég smellti mér beinustu leið í Fjarðarkaup í Hafnarfirði og verslaði mitt Metasys þar. :o)

Kær kveðja, Hugrún

Flatskjár í Elko vs. Svíþjóð

Var að skoða sjónvarp í netverslun ELKO sem samkvæmt eftirfarandi kostar 179.995,- með 24,5% virðisauka.

ELKO

Sama tæki kostar sænskar 6.790,- eða 95.060,- m.v. gengi 14 krónur og er þetta einnig með 24,5% virðisauka.


SVÍÞJÓÐ

í hverju skyldi verðmismunurinn upp á tæp 90% liggja.
Kveðja,
Jón Sævar

Byko vs. Toom í Þýskalandi

Ég keypti mér Kaldewei bað í BYKO um daginn og kostaði það kr 36.990 en grenjaði út 15% afslátt en það var eins og ég hafi verið að biðja sölumanninn um fjölskylduna hans. (Húsasmiðjan var með sama bað á rúmar 40.000 kr.
Ég er núna staddur í Þýskalandi og datt inn í búð sem heitir TOOM og skoðaði mig þar um. það eina sem gerðist við það er að ég rauk út í geðveiku skapi.
Eftir að hafa séð margt á minna en helming af verðinu heima sjá ég helvítis baðkarið eins og ég keypti af BYKO á 108.99 Evrur en samt 5 centimetrum breiðara nákvæmlega sama tegund. Sem gera um 16.500 ISK.
Það er alveg á hreinu að þessar drullu búðir þarna heima sem þykjast vera að gefa okkur vörurnar eru að nýta sér ástandið á Íslandi og krónunni og hækka vörurnar alltof mikið þeir eru að seilast oní vasana hjá fólki sem er að koma til að kaupa eitt og eitt bað eða vask og blöndunartæki eða eina túbu af kítti til að mæta samdrættinum hjá stóru verktökunum. Þetta er viðbjóður.
Árið 2004 keypti ég svona bað á 9.900 kr þannig að ég mundi halda að ef gengið hækkar um helming væri eðlilegt að baðið kostaði kanski rúm 20.000.
Þarf að fara að fletta ofan af þessu þarna heima. Ég get bent í mýmörg dæmi en kanski gefst ekki tími til þess.
Kv,
Þorgils

Léleg framsetning á flugi til Milano

Kæru Flugleiðir,
Hvergi á kynningu á ferðum til Mílanó ( á http://www.icelandair.is/destinations/flights/item13099/flug-til-milano/)
kemur fram á hvaða dögum er flogið, nema að maður gefi sér það að
þar sem fyrsta flugið sem er laugardaginn 30. maí, þá hljóti öll flug
sumarsins vera á laugardögum.
Smelli maður á flugáætlun eða flugáætlun okkar á Mílanósíðunni þá
eftir langa bið (tæpa mínútu) kemur upp önnur valsíða sem nú hefur
Amsterdam valið sem áfangastað, þrátt fyrir að fari væri af
Mílanósíðunni. Eftir að maður hefur breytt áfangastaðnum í Mílanó,
kemstu hins vegar að því að ekki er hægt að velja nein flug nema til
19.4., sem er reyndar í samræmi við það sem segir að þarna séu ekki
sýndar flugáætlanir nema mánuð fram í tímann. Ég veit ekki hvað maður
á að halda á þessu stigi.
Þegar maður síðan er búinn að prufa sig áfram með því að reyna að
finna ferðir á venjulegan máta með bókunarvélinni, þá birtist bara sá
dagur sem maður valdi, en ekki fleiri dagar í töflu, eins og t.d. er
þegar maður bókar til London. Þannig, að viti maður ekki að beinu
flugin eru séu bara á laugardögum, kemst maður helst að því að það séu
engin bein flug og að allar þesar augýsingar um flug til Mílanó séu
bara plat. Því síður gefst manni kostur á auðveldan hátt að sjá
hvenær ódýrustu flugin kunni að vera eða bað bera saman verð á
mismunandi dagsetningum, nema þá eftir að maður hefur sjálfur fundið
út að öll flugin reynast vera á laugardögum og prófað sig áfram með
mismunandi brottfarar og komudögum, sem er ærið verk þar sem mögulegar
samsetningar ferðadagar eru margar.
Algerlega óásættanleg framsetning. Samt stendur efst á Mílanósíðunn:
Mín Mílanó frá 17.300.
Kristleifur Kristjánsson Vildarkortshafi

miðvikudagur, 18. mars 2009

Ekki hress með Max1

atlisteinn.is hefur kosið að vekja athygli þína á þessari færslu:

http://www.atlisteinn.is/index.php?option=com_content&view=category&layout=blog&id=40&Itemid=68

Jónas og Gunnar hjá Vodafone skrifast á

Posted To: Vodafone
Subject: Reikningur á rangan mann
Sendandi Jónas Þór Oddsson
Sæl,
ég er að fá reikning uppá 47.000kr, en ég er ekki í viðskiptum við ykkur, þar að auki bý erlendis. Vinsamlegast leiðréttið þetta eins og fljótt og unnt er.
Kveðja
Jónas Þór Oddsson



Sæll Jónas
Þessi reikningur er fyrir númerið 8206315 og hefur þetta númer sem hefur verið skráð á þig síðan 19 febrúar 2008. Ég sé ekki ástæðu til þess að leiðrétta þennan reikning.
Kveðja Gunnar
Þjónustufulltrúi Vodafone



Sæll Gunnar,
Þetta er snilldar svar hjá þér og lýsandi fyrir það þjónustustig sem er veitt hjá Vodafone.
Hér eru mistök gerð að hálfu Vodafone, en þú lítur á það sem hlutverk viðskiptarvinar finna út hvað fór úrskeiðis hjá Vodafone.
Gott að ég náði tala við hana Töru í gær. Þrátt fyrir að hún hafi verið svolítið sein í gang þá fór hún í málið. Hún fann útúr því hvað fór úrskeiðis hjá Vodafone og leiðrétti mistökin, sem ég er mjög þakklátur fyrir.
Einnig finnst mér það mjög ógnvekjandi að svona mistök skuli gerast hjá ykkur, að hægt sé að skrá símanúmer og reikninga á 3ja aðila án hans vitundar.
Og Gunnar ég held að þú ættir að lesa starfsheitið þitt áður en þú svarar fyrirspurnum.
Kveðja,
Jónas Þór Oddsson

250% álagning á HFK barnanærfötum í Hagkaup Holtagörðum.

Við hjónin vorum að leita eftir nærfötum á stelpuna okkar sem er að fara að hætta á bleyju á næstunni. Kíktum í Hagkaup og tókum eftir að það var búið að líma margoft yfir upprunalegu verðmerkinguna á einum pakkanum. Verð á hillumiða var 1499, en upprunaleg verðmerking var 599. Þetta er HFK línan (Hagkaup for kids) sem er framleidd fyrir þá sjálfa, og núna hefur þetta semsagt hækkað um ca. 250%.
Með kveðju,
Þröstur Bragason

Verðmyndun á rúðuvökva!

Í seinustu viku átti ég leið á bensínstöð, vantaði rúðuvökva og þegar að því
kom að borga, varð ég dálítið hissa. þetta var á stöð hjá N1, þar er líterinn
seldur á 215 kr.og fannst þetta vera hátt verð. Gerði smá könnun, hjá Olís er
verðið 216 kr. og Skjeljungur 210 kr. Hvað ræður þessu verði, hvað í vökvanum
er svona dýrt?
Fór í Bónus og keypti þar líterinn á 138 kr. + umbúðir. Hvað ræður þessu háa
verði á bensínstöðvum.
Kveðja óánægður neytandi

Heimsmet í OKRI

Í gær þurfti ég að útvega kunningja mínum gasolíusíu í 18 manna litla IVECO rútu. Núverandi umboðsaðili fyrir IVECO er Bifreiðar og landbúnaðarvélar og var því farið þangað til að kaupa síuan. Hún var til og kostaði litlar IKR. 24.500 pr. stk. Tutttugu og fjögurþúsund og fimmhundruð 00/100-. Mér blöskraði verði og hætti við að kaupa síuna. Vélaver var með umboðið fyrir þessa bíla þar til í haust og er því með varahluti líka. Þar kostar sama sía orginal frá IVECO IKR. 3. 400. Þrjúþúsund og fjögurhundruð 00/100 - munurinn er um 720% sjöhundruð og tuttugu % hærri. Einnig er hægt að fá universal síur hjá N1 á um IKR. 3.200
Kveðja,
Tryggvi Árnason

Risastóra Pony hækkunin

Fór í Toys´r´us í október og keypti 2 kassa af ponyhestum og fylgihlutum. Kassinn kostaði 999 kr stk. og var ekki á tilboði. Núna 5 mánuðum seinna kostar þessi sami pakki 14.999,-... vissi ekki hvort ég ætti að hlægja eða skellihlægja! Tek það fram að þetta er ekki My little pony heldur ódýrari týpan af ponyhestum. Í þessum kassa voru að mig minnir 2 stórir hestar, 3 minni, blásari, hárskraut fyrir hestana og límmiðar.
Hlín Elfa

Lýgi í auglýsingum

Jæja í gær þá lét ég færa símanúmerið mitt frá Símanum. Ég er bara algjörlega kominn með nóg af því hvað Síminn lýgur í auglýsingum. Síminn auglýsir grimmt þessa dagana svokallaða aðgerðaráætlun og þar á maður að geta hringt í 6 símavini óháð kerfum, þeir segja hins vegar ekki í auglýsingunni að þessi þjónusta kostar heilar 1990 krónur en því er auðvitað sleppt úr auglýsingunni.
Þannig ég býð bara núna eftir því að númerið mitt verði fært yfir til vodafone. Þá getur maður amk talað frítt við ástina sína því hún er hjá vodafone.
Kveðja,
Einn ósáttur með símann

Okur og slæmt viðmót í Ikea!

Veitingastaður Ikea Kauptúni.
Ósvífin gjaldttaka.
Fór í dag í Ikea, veitingastað Kauptúni og keypti mér grænmetisbuff.
Óskaði eftir því að sósan sem á að fylgja með yrði sett í sósuskál. Við
kassann er ég síðan rukkaður fyrir auka sósu kr. 95. Ég segi stúlkunni að
þetta sé ekki aukasósa heldur sósan sem fylgja eigi réttinum en ég vilji
ákveða sjálfur hvar ég helli henni yfir matinn og hvað mikið ég borði af
henni. Verður engu tauti við stúlkuna komið og bið ég þá um að fá að tala
við yfirmann. Var bent á að banka á einhverja rúðu við hliðina á eldhúsinu
en enginn svarar því. Sest því og byrja að borða matinn þar sem ég vildi
ekki láta hann kólna niður. Þá kemur yfirmaður að borðinu og spyr hvert sé
erindið. Segi ég honum nákvæmlega það sama og afgreiðslu konunni að því
viðbættu að mér finnist sósan sem borin sé fram með þessum rétti vond og
vilji því ákveða hvar ég helli henni á matinn og hvað ég borði mikið af
henni. Einnig eigi sósa að fylgja með réttinum og afhverju ég sé þá
rukkaður um aukasósu. Skýringin sósan var sett í skál og þá er hún orðin
að aukasósu hjá IKEA og rukkað sé fyrir allt aukalega sem fylgji ekki með
réttum.
Benti yfirmanninum á að þegar lagt væri á borð fyrir gesti væri sósa
yfirleitt borin fram í sósuskálum þar sem gesturinn gæti þá helt henni
sjálfur yfir sinn eigin mat.
Yfirmaðurinn neitaði að endurgreiða sósuna og þakkaði ég fyrir og benti
honum á að ég gæti vel keypt mér mat annars staðar sem ég mun væntanlega
gera hér eftir. Góður veitingastaður er í Byko í næsta húsi við og einnig
frábær veitingastaður í Húsasmiðjunni, Skútuvogi.
Fyrrverandi viðskiptavinur IKEA.

Stóra Coca-Cola hneykslið

Ég held að ég hafi komist að svolitlu um matvörubúðina Krónuna, það virðast vera samhæfðar aðgerðir hjá kassafólki þar að þegar maður kemur með kippu af kóka kóla á kassa þá stimpla þau inn 6x 2L (þ.e 1 flaska 6 sinnum) í staðinn fyrir að stimpla bara strikamerkið á kippunni. Þegar 1 flaska er stimpluð 6x þá kosta þessar sex flöskur 1158kr umþb en ef kippu strikamerkið er stimplað er verðið 1099kr.
Ég hef oft velt þessu fyrir mér þegar ég sé kassafólkið stimpla inn sex flöskur í staðinn fyrir eina kippu en aldrei náð að skoða verðmuninn
á skjánum fyrr en eftirfarandi átti sér stað.
Ég var um daginn að kaupa mér kók. Smellti kippunni á kassann og fylgdist með verðskjánum. Stúlkan stimplaði fyrst strikamerkið á kippunni
og ég greip verðið á skjánum 1099, augnabliki síðar kallar kassadaman á næsta kassa sem var greinilega yfir til stelpunnar að stimpla 1 flösku 6x sem hún og gerði- ég sá verðið -1158, þegar ég mótmælti þessu og bað stúlkuna að stimpla strikamerkið góða
sagði hún bara þvert nei-ég ákvað að snúa mér að hinni eldri dömunni og spyrja hana hverju þetta sætti- hún sagði þetta vera merkt svona í hillu,
Ég tók hana á orðinu og fór og gáði-enginn merking fyrir kippurnar-ég fór til baka og sagði henni það- hún varð snúðug greyið og hafði fá svör.
Í því kom annar starfsmaður og spurði hvað gengi á, sem ég og sagði honum- hann lét þá yngri stimpla strikamerkið og svo flöskuna 6x
skoðaði verðmuninn og sagði að auðvitað ætti ég að borga lægri upphæðina-málið dautt- ég fékk 59 kr mínar :)
Mér finnst samt grunsamlegt að þessi ágæti starfsmaður hafi þurft að sjá verðmuninn svona stimplaðann í kassann til að átta sig, hvað þá kassastelpurnar.
Svo fór ég í dag og keypti mér aftur kippu í annari krónubúð- í þetta skiptið sleppti ég að setja kippuna uppá kassan heldur tíndi
vörurnar upp-tók strikamerkið af kippunni og rétti henni á meðan ég keyrði hana framhjá í kerrunni- Fannst ég sjá smá stút á vörunum en ekkert var sagt.
Hvort einhver fótur er fyrir þessu eða hvort ég er bara ímyndunarveikur veit ég ekki allveg en það er jú víst að safnast þegar saman kemur.
Ívar Larsen,
Múgur og margmenni/fáfræðingur-PhD.

Auglýst verð ferðaskrifstofa

Er ekki tímabært að biðja ferðaskrifstofurnar að hætta að auglýsa öll
verð miðað við tvo fullorðna og tvö börn undir 11 ára?
Væri ekki nær að benda þeim á að auglýsa rétt verð og gefa upp barnaafsláttinn sér.
Hallgrímur

Sparað í Ósal

Ég verða að segja þér frá því að mig vantaði kapal í jeppakerru. Svo ég lagði leið mína í gamla Bílanaust eða sem heitir víst N1 í dag og kíkti þar á kapal. 1 metri af þessum kapli, 7 víra kapli, kostaði þar 950 krónur. Mig vantaði 5m af þessum kapli og mundi þá verðið vera 4750 krónur. Mér fannst þetta nokkuð dýrt svo ég lagði leið mína ca 100 metra leið i verslun sem heitir Ósal og er á Vagnhöfðanum. Þar kostaði kapallinn 1 metri 458 krónur eða þessir 5 metrar alls 2290 krónur. 100 metra leið sparaði ég 2710 krónur eða um 5 mínútna vegalengd. Það er nokkuð gott tímakaup.
Kveðja,
Georg Kulp

þriðjudagur, 17. mars 2009

Eldsneytisverð á bíla

Undanfarna mánuði hefur íslenska krónan styrkst verulega og á sama tíma hefur
olíutunnan lækkað niður í 45 dollara en eldsneyti á bíla hefur ekki lækkað í
sama hlutfalli.Ég held að samráð olíufélaganna hafi aldrei verið meira en
nú,sem sést best á því að þau eru öll að bjóða lykla og kort með örfáar krónur
í afslátt,afhverju lækka þau ekki bara verðið á eldsneytinu.Smávara eins og
rúðuvökvi,þurrkur,bón,tjöruhreinsir og fl.sem tilheyrir rekstri á bíl,fæst
yfirleitt helmingi ódýrara annars staðar en á bensínstöðvum.Það þarf greinilega
að skoða rekstur olíufélaganna með hagsmuni neytenda í huga en ekki bara
eigenda sem hafa keypt hlut í þeim á yfirverði.Hvernig hefur þrjúhundruð þúsund
manna þjóð efni á því að reka fimm olíufélög?.Hvenær fáum við að sjá alvöru
samkeppni milli olíufélaganna, sem byggir á hagkvæmni í rekstri og lágu verði
til neytenda?
Friðrik

ÓB? Nei, Olís!

Í Borgarnesi eru þrjár bensínstöðvar, N1, Shell og ÓB, eða það sýnist manni þegar maður ekur í gegn og við blasa þrjú stór ljósaskilti þar sem kemur skýrt fram hvert lítraverðið er. En þeir eru ekki allir þar sem þeir eru séðir hjá ÓB því að á sama plani eru fleiri dælur og ef maður er rosalega vakandi þá ætti maður að fatta að þar er Olís á ferð. Hjá þeim er hærra verð en hjá ÓB og maður getur jú fengið þjónustu og greitt inni en hvergi merkja þeir lítraverðið heldur vakir ÓB merkið fyrir utan planið þeirra af því að það er jú ein ÓB-dæla inn á planinu. Ég gekk í þessa gildru og las lítraverðið á ÓB skiltinu renndi inn á planið og dældi á bílinn. Svo verður mér litið á lítraverðið á dælunni og sé að það er allt annað en á stóra ljósaskiltinu og hef orð á þessu þegar ég fer inn til að borga og konan segir, hin rólegasta, nei það er verðið hjá ÓB. Bíddu er þetta ekki ÓB? Nei, nei þetta er Olís.
Er þetta eðlilegt?
Er ekki einhver krafa um að verð sé greinilegt?
Kveðja,
Vonsvikinn norðlendingur.

Páfagaukur bryður gull

Ég fór í Dýraríkið í Garðabæ í dag til að kaupa jarðhnetur fyrir minn elskulega grápáfa sem bölvar eins og sjóari ef hann fær ekki hnetur nokkrum sinnum á dag.
Venjulega hef ég verið að borga 400-600 kall fyrir hálft kíló af þessu og voru þá gæðin oft mun betri.
Nema hvað... Í dag kaupi ég semsagt poka (sem ég held að þeir pakki saman sjálfir) sem innihélt hálft kíló af hnetum, margar hverjar brotnar og það kostaði heilar 1005 krónur.
Hálft kíló af jarðhnetum fyrir ofalinn páfagauk? Ég leit að vísu ekki á verðið fyrr en ég kom út í bíl og fannst þá að einhver hefði gyrt niður um mig á almannafæri. Slík var skömmin.
Ég held að ég hlusti bara á illfyglið mitt bölva í framtíðinni í staðinn fyrir að gefa honum jarðhnetur á fokkíng 1005 kall
kv,
Gunnar

Vá mér brá!!

Ég varð að láta vita af þessu, þó svo að þetta er svolítið sérhæft dæmi.
Hringdi í N1 og spurðist fyrir um kerti í Mözdu 626 2000 árgerð. Maðurinn í símanum fletti þessu upp (út frá bílnúmeri) hjá sér og fann það út að þetta færu nokkuð sérstök kerti sem þyrfti í bílinn og kostaði stykkið 4996 krónur stykkið. Semsagt 19984 kr. fyrir þessi 4 sem ég þarf.
En þar sem það er kreppa og almenn skynsemi að hringja á fleiri staði og kanna önnur verð, hringi ég í Stillingu. Þar flettir sölumaður upp sama bílnúmeri og finnur hjá sér sömu gerð af kertu (geri ég ráð fyrir vegna þess hversu "sérstök" þau eru) og ÞAU VORU Á 849 KRÓNUR STYKKIÐ!!!!! Ég missti mig í símanum og sprakk úr hlátri og gólaði á hann að N1 væru að selja þetta á 4996 stykkið...var hann að grínast í mér!? hann skoðaði þetta nánar (og þá sá ég eftir að hafa spurt hvort hann væri að grínast..enda ágætis tala miðað við fyrri "ræðumenn") En svo var ekki. þetta var ekki djók. Það munar 16588 krónum á kaupunum á kertunum.
Fokk..
Kv. IG

Okur hjá rafvirkjum

Ég er formaður yfir húsfélagi hér í bænum og þurfti að fá rafvirkja í smá vinnu fyrir húsfélagið sem endurspeglar græðgina sem hefur verið þjóðfélaginu undanfarið.
Það komu til mín tvær manneskjur úr húsinu til mín og benti mér á að ljósin loguðu alltaf í stigahúsinu, en það á að slökkva á því eftir fáeinar mínútur. Ég fór að skoða málið niður í töflu og fann ekkert að rofanum þannig að ég hringdi í Rafsól og fékk þær upplýsingar að líklaga væri biðrofi fyrir ljósin ónýtur. Ég bað þá að koma á staðinn og bjarga málunum sem er svo sem ekki frásögu færandi fyrir en við fengum reikning uppá 32 123 kr.
Þetta fannst mér vera ansi mikið þannig að ég hringdi í þá og kvartaði, en fékk engu breytt.
Það kom í ljós að þeir rukka lámark fyrir 2 tíma í senn á 6779 kr. m/vsk og akstur 2739 kr. , verkfæragjald 1245 kr. og að lokum Stigaautomat á 14331 kr. Allar tölur eru með vsk.
Ég hringdi í Reykjafell sem er með heildsölu fyrir rafmagnvörur og þar gat ég keypt Stigaautomat á 7700 kr m/vsk. án afsláttar.
Vinnan á staðnum hefur líklega tekið 15- 20 min. og um 30 til 40 með akstri.
Það er reyndar heilt húsfélag sem borgar fyrir þetta, en ég er að hugsa um einstakling sem þarf að fá rafvirkja til sín í hálftíma vinnu en þarf að borga vikulaun fyrir, hvernig á þetta að vera hægt. Til að fá 32 000 kr. í peningum þar launamaður að vinna fyrir um 50 000 kr. sem er viku laun marga í landinu.

Kær kveðja
Helgi Unnar Valgeirsson

Tilboð marsmánaðar í Bakarameistaranum:

Íslandsbrauð
199 kr. - sambærilegt brauð kostar 450 kr.
- var ekki í sölu áður en búið til sem kreppubrauð!

Rúnstykki og kringlur
80 kr. - verð var áður 130 kr. ostarúnstykki, 105 kr. kringla, 110 kr. kringla gróf, 115 kr. kjallarabolla og 105 kr. birkirúnstykki.

Eplakaka
550 kr. - var 785 kr.

Bananarúlluterta
kr. 790 - var 1.495 kr. (var örlítið stærri áður)

Snúður og kókómjólk
200 kr. - var 300 kr.

Vínarbrauðslengja
430 kr. - var 615 kr.

Baguette með skinku og osti
395 kr. - var 495 kr.

(Þetta tilboð var sent frá almannatengslastofu)

Góðir hjá Nóva

Ég er núna búinn að vera með símanúmer hjá Nova í eitt ár, og þar af leiðandi hætti ég að fá 2000 króna inneign frá þeim mánaðarlega.
Ég hringdi í þjónustuverið til að athuga afhverju ég hefði fengið 500 krónur inn á reikninginn minn í byrjun mánaðar (ekki að það sé neitt leiðinlegt). Þá fékk ég að vita að Nova væri að gefa mér 500 krónur mánaðarlega í óákveðin tíma, einfaldlega fyrir það að hafa verið tryggur viðskiptavinur! Ekkert stendur um þetta neinsstaðar í samning eða á síðunni þeirra svo ég viti, þannig að þetta eru þau greinilega ekki knúin til að gera.
Það er nú ekki algengt að fyrirtæki séu hreinlega að gefa manni peninga þessa dagana. Þótt þetta sé engin stórupphæð, þá gerði þetta mjög mikið fyrir mig og þeir mega vera vissir um að ég mun ekki færa viðskipti mín í náinni framtíð! :).. Frábær þjónusta
Hjörtur

Bréf frá "Starfsfólki VALITOR"

Fyrir þá/þau, sem eru með VISA platínumkort:

"Breytingar á fríðindum Platinum korta VISA"
Með Priority Pass, sem er sérstakt forgangskort sem fylgir VISA Platinum
korti fæst aðgangur fyrir korthafa og ferðafélaga hans að þeim betri
stofum sem tilgreindar eru á heimasíðu Priority Pass
www.prioritypass.com, ásamt upplýsingum um þá aðstöðu sem í boði er í
hverri flugstöð.
Hingað til hafa Platinum korthafar, ásamt gesti, haft frían aðgang að
þessum betri stofum flugvalla.
Fyrir umfram gesti hefur korthafi þurft að greiða.
Vegna mikilla breytinga á gengi USD hefur kostnaður vegna hverrar
heimsóknar hækkað umtalsvert og er nú svo komið að við sjáum okkur ekki
fært að bjóða þessa þjónustu án endurgjalds.
Aðild að Priority Pass klúbbnum verður áfram án endurgjalds en frá og
með 1. apríl nl. þarf að greiða fyrir hverja heimsókn sem nemur
kostnaðarverði hennar, núna um það bil 27 USD á mann.
Við vonum að korthafar sýni þessu skilning og haldi áfram að nýta sér
kosti Priority Pass þrátt fyrir þessa breytingu.
Ef þú hefur spurningar varðandi þetta getur þú haft samband við
þjónustuver VALITOR eða þinn banka/sparisjóð.
Með kveðju,
Starfsfólk VALITOR"


Mér er spurn, gleymdi "starfsfólkið" að taka fram hve mikil lækkun yrði
á árgjaldinu vegna þessa?
Það er mikið lagt í hendur starfsfólks nú til dags......
Ónefndur

Á rusl matur ekki að vera ódýr?

Varð að koma þessu eitthvert, við maðurinn minn erum í sjokki eftir að
hafa farið á aktu taktu og pantað, 2 staka ostborgarar, 2 sjeika og 2l
kristall og verið rukkuð 2700kr!!
Arna

mánudagur, 16. mars 2009

Illa verðmerkt í Skífunni

Ég var á leiðini til útlanda í morgun og kom við í Skífunni Leifsstöð og var að
athuga hvort þær væri hægt að finna ódýra tónlist. Í einni hillu voru íslenskir
diskar. Þeir sem voru verðmerktir, sem þeir voru reyndar flestir, kostuðu innan
við 2000 krónur. Svo sá ég disk sem ég var spenntur fyrir, nýja disinn með
Emilíu Torrini. Ég gerði ráð fyrir að hann kostaði eitthvað svipað en ákvað þó
að spyrja afgreiðslumanninn. Hann svaraði um hæl 2790 krónur. Ég horfði framan
í manninn og það fór um mig þessi séríslenski aulahrollur því hvorugur okkar
var greinilega búinn að ákveða hver væri aulinn í þessu tilviki. Svo ég leit
undan og forðaði mér út úr búðinni. Einhverra hluta læddist að mér sá grunur að
hér væri verið að leika gamlan leik (ekki síst vegna þess að í sömu hillu var
annar óverðmerktur diskur, nýi diskurinn með Mugison) Að stilla dýru vörunni
óverðmerktri upp við hliðina á ódýrari vörum í þeirri von að kúnninn haldi að
hún sé ódýrari og fatti það ekki fyrr en hann er búinn að borga og nenni ekki
að rexa þegar kortið er komið í gegn. Enda er hann alveg að fara að missa af
flugvél. Það virðist vera einhver skemmtilegur leikur hjá bissnesfólki að hafa
engar eða villandi verðmekingar á vörum og þjónustu. Kannski það sé skýringin
hve margir eru illa staddir í dag. Menn hafa einfaldlega ekki séð neinn
verðmiða en látið samt vaða og fattað fyrst seinna hvað þeir eru að borga.
Hvort sem það eru diskar, matur, hlutabréf, húsnæðislán eða eitthvað annað. Ég
sé mest eftir að hafa ekki tekið mynd af hillunni. En einhverra hluta vegna
kæmi mér ekki á óvart að merkingarnar yrðu enþá svona næst þegar þú eða einhver
sem þú þekkir færi um Leifsstöð. Ég skora á þig að kanna það mál.
Kveðjur,
Steinn Kristjánsson

Skítug ónýt vöfflujárn í Elko

Ég fékk gefins Clatronic vöfflujárn (1200w)sem var keypt í Elko. Það járn
hitaði ekki og fór ég og skilaði því (reyndar löngu seinna því ég baka ekki oft
vöfflur). Það var ekki til nýtt járn en þeir sögðu strax þetta væri mjög
algengur galli í þessum járnum og ég fengi bara annað seinna.
Ég fékk annað járn á fimmtudaginn sem var alveg eins og það gamla. Ég prófaði
það í gær og það hitaði bara öðrum meginn eins og síðasta járn. En munurinn er
að þetta járn var greinilega notað. Það var rispað og kámað. Ég skilaði því í
dag og fékk að vita að frá einum starfsmanni að vörur væru settar aftur í
hilluna og þá seldar sem B vörur,en annar sagði að það væru aldrei settar
gallaðar vörur aftur í hillu. Ég fékk fyrir rest endurgreitt en það er
nátturulega ekkert tekið tillit til að járnið hefur hækkað um 100% eins og allt
annað. Það er allavega lágmark að ef Elko ætlar að selja öðrum gallaða vöru að
þeir þrífi hana áður en þeir setja hana í hilluna.
Ásgerður

Allt að 90% afsláttur!

Toppskórinn Outlet auglýsir “allt að 90% afslátt” með stóru letri í Fréttablaðinu núna um helgina. M.a. voru auglýst íþróttaskómerki eins og Puma, Addidas og Rbk. Við systurnar létum gabba okkur - keyrðum 15 km á útsölumarkaðinn sem staðsettur er í Vínlandsleið 6. Við gripum heldur betur í tómt. Engir íþróttaskór og auglýstur afsláttur var aðeins 30-50%. Við spurðum ungan afgreiðslumann hvar þessi 90% afsláttur væri. Svaraði hann því til að fáeinir skókassar væru merkir með þessum kjörum og að viðskiptavinir þyrftu sjálfir að leita að þessum skóm. Ég vil benda öðrum á þessa undarlegu viðskiptahætti, þar sem kúnninn er hreinlega narraður inn með gylliboðum.
Kveðja,
Guðrún Gunnarsdóttir

Dýr bjór á Hressó

Á Hressingarskálanum við Austurstræti kostar bjórglasið 900 krónur. Okur, það þarf ekki að segja meira.
Aron

Að hafa augun hjá sér í Bónus


Vildi benda þér á svolítið misræmi hjá Bónus, Korputorgi þann 10. mars s.l. Þar voru þrjár mismunandi Filippo Berio (FB) extra virgin ólífuolíur til í 2 mismunandi stærðum á þremur mismunadi verðum. Önnur 750ml flaskan var merkt "50% more, same price" eða 50% meira fyrir sama verð. Það þarf greinilega að hafa augun hjá sér og athuga hvað er ódýrast. Ef þetta væri rétt þá ætti 750ml flaskan með 50% meira að kosta 528 krónur þar sem það virðist vera að bjóða 50% meira magn heldur en það sem er í 500ml flöskunni á sama verði og 500ml flaskan er (Þó hún sé vissulega ódýrari per líter en sambærileg 750ml flaska). Sú er þó ekki raunin eins og sjá má eftirfarandi töflu:

Hvað Magn (ml) Verð á flösku
Verð per líter
FB 500ml extra virgin 500 528 1056
FB 750ml extra virgin 750 859 1145
FB 750ml extra virgin 50% meira sama verð 750 598 797

Ég vil einnig vekja athygli á því að 500ml flaskan er ódýrari en venjulega 750ml flaskan (Munar 8,4% per líter). Svipað á við um FB ólivuolíu, minni flaskan er ódýrari en stærri flaskan, en ég hef því miður ekki verðin á þeim.
Með kveðju,
Þórir

sunnudagur, 15. mars 2009

Samskipti við Apple verkstæði

Góðan daginn.
Þannig er að ég á iPod (8L718AM9V9M iPod Classic 30gb) sem ég keypti í USA í júní 2007. Það kom fram þegar hann var skráður inn á verkst.
Nú á dögunum tók hann upp á því að ég hætti að geta tengt hann við heimilistölvuna og þ.a.l. gat ég ekki hlaðið inn á hann tónlist né heldur náð að hlaða rafhlöðuna. En hann virkaði fullkomlega t.d. í bílnum, þar gat ég tengt hann, hlustað í gegnum bíltækið og einnig var hægt að nota hann á hefðbundinn hátt, þ.e. með heyrnartólum eða í sambandi við hátalara.
Ég fór með tækið á apple verkstæðið og bað þá um að líta á hann. Þar var mér sagt að þeir gætu litið á hann og bilanagreint fyrir rúml.2.400 kr.
Nokkrir dagar liðu og þá fékk ég sms þar sem stóð að tækið væri tilbúið til afgreiðslu. Ég borgaði reikninginn (sölukvittun PI69008002966), tók tækið og fékk þau munnlegu skilaboð að þeir hefðu getað tengst tækinu, en að “drifið væri orðið mjög hægfara”. Því miður prófaði ég ekki tækið á verkstæðinu en tók það með heim.
Þegar ég ætlaði að kveikja á því til að hlusta gerðist ekkert annað en það að ég heyrði skruðninga, ekkert birtist á skjánum og ég gat á engan hátt notað tækið. Ekkert gerðist þegar ég reyndi að tengja við tölvuna.
Daginn eftir fór ég á verkstæðið og þar reyndi starfsmaður að tengast tækinu en gekk ekki. Sagði hann mér að það væri bara ónýtt!! Ég vildi fá að vita hvað þeir hefðu raunverulega gert þegar það var hjá þeim, því ekkert stendur á reikningnum sem ég fékk fyrir “innlögninni” . Sagði hann að ekkert hefði verið gert annað en að hann hefði verið bilanagreindur.
Ekki var ég nú sáttur við að tæki af þessu tagi skuli ekki endast lengur en í eitt og hálft ár en fékk þau svör að sennilega væri þetta út af slæmri meðferð eða þá að þetta væri bara lélegt eintak.!!!
Það eru nokkur atriði sem ég set spurningarmerki við:
Það getur ekki verið eðlilegt að tækið skuli ekki endast lengur en í 1,5 ár, en meðferðin hefur verið þannig að ég hef sett hann í samband við tölvuna, hlaðið inn á hann tónlist, (ca 4-6 Gb), hlustað á hann með heyrnartólum eða sett í samband við hátalara í stofunni. Einstaka sinnum tengt hann í bílnum. (Ég er maður á miðjum aldri og ekki með þetta hangandi á eyrunum allan daginn!)
Ég gat þó notað hann áður en ég fór með hann í viðgerð, hlustað á það sem var á honum án þess þó að bæta nokkru nýju við.
Er ég bara varnarlaus og þarf ég að sætta mið við úrskurð umboðsaðila um það hvort og hvað hægt er að gera og ekki síður að fá úr því skorið hvað hefur gerst þegar tækið var í “bilanagreiningu”
Ef ég hefði nú vitað að ég fengi tækið ónothæft til baka hefði ég aldrei farið með það í viðgerð.
Ef um það er að ræða að þetta gæti hafa verið “lélegt eintak” er þá ekki eðlilegt að framleiðandi bæti gallaða vöru þó svo að ábyrgð sé útrunnin?
Bestu kveðjur,
Grétar

Viðbjóður hjá Glitni (eða hvað sem það heitir)

Er með vinnubíl í eigur fyrirtækis á kaupleigu hjá Glitni banka.
Fyrverandi framkvæmdastjóri fyrirtækisins var ábyrgðarmaður samningsins. Núna er ég komin með framkvæmdastjórn og prókúru fyritækisins og ákvað að láta breyta ábyrgðamanni á bílasamningnum yfir á mig. Það var ekkert mál en það kostar Kr. 15.000 sem er hæfileg þóknun að mati bankans fyrir þessa pappírsvinnu sem þeir segja umtalsverða. En þetta eru laun starfsmans í heilan dag hjá Glitni. Þetta er viðbjóður.
kk
Hjörtur

Nefskatturinn

Var að skoða skattframtalið hjá mér og rakst á línu sem segir " Útvarpsgjald 17.200 kr".
Ég hringdi í afnotadeild ríkisútvarpsins og þar fékk ég þau svör að þetta hafi Sjálfstæðisflokkurinn fengið í gegn, þ.e. að hvert "nef" hér á landi skuli greiða þetta hvort sem þú hafir sjónvarp/útvarp eður ei.
Ágætt að koma þessu á framfæri.
Kv,
Neytandi.

Ódýrast hjá Fisherman.is

Fiskurinn hjá Fisherman.is er töluvert ódýrari en ódýrasti ferski
fiskurinn í verslunum á höfuðborgarsvæðinu skv. verðkönnun ASÍ.*

ASÍ birti 12. mars upplýsingar um verðsamanburð sem gerður var á
ferskum fiski í verslunum á höfuðborgarsvæðinu miðvikudaginn 11. mars.
Í þessum samanburði kemur í ljós að ódýrasti þorskurinn, roð og
beinlaus er á 890 kr/kg Litlu fiskbúðinni Hafnarfirði. Sama búð er
líka með ódýrustu ýsuna, roðfletta og beinlausa og er verðið það sama
890 kr/kg. Bæði þorskur og ýsa eru ódýrari hjá Fisherman.is.

Fisherman.is verðleggur frystan þorsk á 700 kr/kg og ýsuna á 610
kr/kg. Ýsan er því 46% dýrari í ódýrustu fiskbúðinni í samanburði við
ýsuna hjá Fisherman og þorskurinn 27% dýrari. Engu að síður er
fiskurinn frá Fisherman.is eingöngu veiddur á línu og handfæri og því
í er engu slakað á í gæðum.

* Fisherman.is selur eingöngu frystan fisk í heimahús og mötuneyti og
var því ekki með í verðkönnun ASÍ.

Hægt er að panta og fá fiskinn heimsendann í gegnum fisherman.is

Bestu kveðjur,
Valdimar Birgisson

Dýr rafhlaða

Ég er einn af þessum sem of sit bara og tuða yfir hinu og þessu, þegar mér ofbíður og geri sjaldnast neitt í því. En núna er ég nánast orðlaus.
Ég á 4 ára gamla canon ixus myndavél og er búin að vera í vandræðum með hleðslurafhlöðurnar í henni. Fór í gær og kannaði verð hjá Eymundsson á Ísafirði og þar var til rafhlaða sem kostaði rúmar 6000 kr, Mér fannst það í dýrari kantinum og þar sem ég er á leið til Englands eftir mánaðamótin datt mér í hug að kanna verð á myndavélum þar og fór ínn á nokkrar síður og þar á meðal play.com. Þar fann ég fyrir algera tilviljun rafhlöðuna í myndavélina mína og hún kostar nákvæmleg 9.99 PUND og með fríum sendingarkostnaði. Ég hef keyt þarna nokkrum sinnum geisladiska frá 2 pundum og uppúr og þarf aldrei að greiða sendingarkostnað, aðeins tollmeðferðargjald og vsk.
Ég hefiði alveg getað sætt mig við að borga ca 2500 -3000 fyrir þessa rafhlöðu en ekki rúmar 6000.

hér er linkur inn á rafhöðuna


http://www.play.com/Electronics/Electronics/4-/922586/Inov8-Replacement-Camera-Battery-for-Canon-NB-3L/Product.html

Með kveðju
Þorsteinn Þráinsson

Danskt Íslenskt



Fór á Danska daga í Hagkaup og keypti þetta.
Á kassanum stendur "Direkte frá Slagtermesteren" eða beint frá slátraranum.
Allt er á dönsku meira og minna, danski fáninn og alles... en svo stendur í innihaldslýsingunni: Íslenskt ungnautakjöt!

Halló! :)
Páll

Rakaskemmdir eða bara ónýtt batterí?

Mig langar að koma með smá sögu.
Þannig er að ég kaupi mér síma, Sony Ericsson fyrir um 51 þúsund krónur. 9
mánuðum síðar bilar þessi sími. Ef ég lagði hann frá mér þá dó hann þ.e
slökknaði á honum. Ég fer með hann til söluaðila sem er Vodafone. Þar
benda menn mér á að leita beint til umboðsaðila Sony Ericsson sem er
Tækjavörur. Þar er tekið við símanum og spurt hvað sé að honum. Að því
loknu er tekið niður nafn og símanúmer. 3 dögum síðar er hringt í mig frá
Tækjavörum og mér sagt að síminn minn sé ónýtur. Nú spyr ég? Já sko það
eru rakaskemmdir í honum, það borgar sig ekki að gera við hann. Já okei.
Ég fór og náði í símann. Nú voru góð ráð dýr. Þá kíkti ég á síðuna þína og
sá auglýsingu frá Símabæ. Ég fór þangað með símann minn í viðgerð. Kallinn
í Símabæ var að hringja í mig og segja mér að batteríið væri ónýtt. Það
væri hinssvegar ekki til í honum rakaskemmd. Samkvæmt honum þá er
ársábyrgð á batteríinu og í rauninni eiga Tækjavörur að bæta mér
batteríið.
En ef ég vildi nýtt batterí þá væri það minnsta mál að setja það í. Það
kostaði mig litlar 3.900 krónur.
Nú er ég að pæla ætti ég að fara niður í Tækavörur og benda þeim á þessa
greiningu og heimta nýtt batterí eða ætti ég að punga út 3.900 krónum og
láta þar við sitja? Hvað finnst lesendum?
Svo væri gaman að fá svar frá starfsmönnum/eigendum Tækjavara. Af hverju
var mér ekki bent á það að rafhlaðan væri ónýt þegar ég náði í símann? Af
hverju var greiningin sú sama og þegar ég kom síðast með síma til þeirra í
viðgerð "rakaskemmdur" þó það væri ekki um rakaskemmd að ræða?

Nafnleynd

laugardagur, 14. mars 2009

Bætur fyrir ógeðisdrykk

Mig langaði bara að benda ykkur vinsamlegast á grein í blogginu mínu sem ég skrifaði í dag…..mér blöskraði svo mikið við þetta að ég átti ekki til orð…

Sendi bara greinina í heilu lagi og link á bloggið mitt…..veit ekki hvort þið viljið nota þetta en ég er nokkuð sannfærð um að ef ég hefði lent í þessu annarsstaðar í heiminum þá hefði ég fengið betri skaðabætur en hér.

http://123.is/kollster

Vífilfell - OJ bara
Hér í vinnunni minni er ótrúlega fín aðstaða inn á eldhúsi. Við getum keypt ýmsar drykkjarvörur og hafraklatta með því ef manni langar í smá sætindi.
Ég lenti hinsvegar í því ótrúlega ógeðfelda atriði í vikunni að fá skemmda vöru.
Ég sat og borðaði með bestu lyst samloku með henni Ösp minni......með því þambaði ég í mig lítilli flösku af EPLA TRÓPÍ . Þegar ég var búin að svolgra þessu í mig þá varð mér það á að líta ofaní flöskuhálsinn...og þar tók á móti mér þessi líka ófagri MYGLUBLETTUR. Mér varð að sjálfsögðu óglatt þar sem ég var búin að tæma innihald flöskunnar oní mig í sakleysi mínu.
Nú jæja...ég sest við skrifborðið mitt og ákveð að skrifa mail til Vífilfells þar sem flaskan var í kæli og ekki runninn út svo mér fannst ekki við Te og Kaffi að sakast (þeir selja okkur vörurnar í gegnum Vífilfell)
Ég skrifaði mjög almennilegt póst en tók það auðvita skýrt fram að mér þætti þetta fremur ógeðslegt og yrði mjög glöð ef hægt væri að gera eitthvað í þessu fyrir mig.

Svarið sem ég fékk var mjög ómerkilegt.

það var nákvæmlega svona...

Sæl Kolbrún
Þakka þér fyrir að hafa samband við okkur.
Því miður getur svona komið fyrir (eins og þetta væri eðlilegasti hlutur í heimi og væri alltaf að gerast!) - þegar kælivörur eru annars vegar.
Þetta gerist yfirleitt í flutningum með vöruna.
Annað hvort ef varan fellur í hitastigi eða ef það kemst súrefni í flöskuna. (mér er alveg sama hvernig þetta gerist..ég vil bara fá þetta bætt)
Getur þú sent mér tölurnar sem eru á flöskuhálsinum ( fyrir gæðaeftirlitið) og kennitölu + bankaupplýsingar.
Við greiðum 400 kr.(sem sagt þeir greiða mér flöskuna sem ég drakk í mig tilbaka + auka heilar 180 krónur) í bætur inn á reikninginn þinn.
Mér þykir þetta mjög leitt - mjög ógeðfellt að lenda í svona
Kær kveðja og bestu þakkir
Þuríður

Hvað finnst þér ? er þetta þjónusta ?
Mér finnst það allavega engan vegin, ég hefði nú alveg tekið meira en 180 krónur fyrir að drekka þetta EF ég hefði vitað að ég væri að drekka í gegnum mygluklessu !
Héðan í frá kaupi ég mér frekar Pepsi en Kók og svo framvegis. Ég neita að skipta við fyrirtæki sem gerir ekki betur við kúnnan sinn en þetta....í dag er kreppa og fyrirtæki ættu að mínu viti að gera betur við kúnnan sinn til að missa hann ekki einhvert annað, hefði haldið að engin mætti við því að hafa reiðan kúnna út í bæ sem segir vinum sínum frá og þeir segja sínum vinum og þeir skrifa á Facebook og svo framvegis.
Kollsterinn..ekki sátt við BÆTURNAR sínar.

Nethraðalýgin

Langar endilega að benda á eitt í sambandi við nettengingar. Í dag
gefst kostur á að borga mismunandi verð fyrir mismunandi tengingar.
Hraðasta tengingin er 12 mb og var ég með það á þar sem ég bjó áður,
þegar ég mældi hraðann þá held ég að ég hafi mest náð 1 mb tengingu.
Þegar ég hringdi í vodafone var mér sagt að línurnar væru lélegar,
gamalt hús o.fl. Mér var hins vegar ekki bent á neitt af þessu þegar
ég uppfærði úr 5 mb tengingu í 12 mb og borgaði sem sagt nokkur
þúsund á mánuði fyrir tengingu sem gagnaðast mér ekkert.

Heima hjá foreldrum mínum var netið alltaf mjög hægt og þau uppfærðu
í 12 mb tengingu og borga held ég 8 þús á mánuði. Þegar ég mældi
hraðann er hraðinn 200 kb og þegar ég hringdi fékk ég fyrirlesturinnn
um gömul hús, sem þau höfðu ekki fengið þegar þau uppfærðu í 12 mb
tengingu. 1 mb tenging hefði gagnast þeim nákvæmlega jafn vel en þau
eru búin að vera borga auka 5 þús kall á mánuði í ár í nákvæmlega
ekki neitt.

Ætti það ekki vera krafa seljanda að ganga úr skugga um að "varan"
berist honum? Er réttlætanlegt að selja fólki e-ð sem það getur ekki
nýtt sér þegar mjög einfalt er að ganga úr skugga um hvort að það sé
hægt eða ekki.

Ætla að reyna að rífast við Vodafone og fá þetta endurgreitt, er nú
ekki sérlega bjartsýn.

Mbk,
Kristín

AB varahlutir ekki okur

Langar að mæla með AB-varahlutum. Þurfti að versla nokkra varahluti í bílinn minn. Á innkaupalistanum voru bremsudiskar að aftan (beggja vegna) og klossar. Spindilkúlur beggja vegna að framan og tvær númersljósaperur. Verðkönnun mín leiddi í ljós að þetta væri pakki uppá 45-50þús krónur (Hringdi á 2 staði). Þá datt mér í hug að prufa að hringja í AB-varahluti og viti menn, þar kostaði þessi pakki 25þús krónur. Svo mæti ég á staðinn og þá kemur í ljós að sem handhafi dælulykils frá Atlantsolíu fæ ég auka 12% afslátt. Pakkinn endaði því í c.a 22þús krónum sem ég var hreint ekki ósáttur við.
Mæli eindregið með AB-varahlutum, þeir segjast vera "ódýrastir" og samkvæmt þessu eru það engin ósannindi.
Haukur H. Þ.

föstudagur, 13. mars 2009

Ódýrara í sænskum apótekum

Mig langar að kvarta yfir ógeðslegu okri lyfjabúðanna, ég var í Svíþjóð um daginn og keypti mér exemkrem, Mildison, það var helmingi ódýrara þar sem og allt annað í apótekinu! Hvernig stendur á þessu ? Ég er ekki bara að tala um lyf heldur nánast allar vörur lyfjabúða. Ég keypti eitt lítið bólukrem fyrir dóttur mína í Lyf og Heilsu, Duac, 25 gramma túpa, jú rúmar 4.000 krónur ! Hreinsað bensín ca. 100 millilítrar kostaði yfir 400 krónur. Þetta er hrikalegt okur!
Ein sem óskar nafnleyndar

Fáránleg hækkun

Ég fór í Hagkaup Garðabæ á þriðjudag að leita af stígvélum nr 35. Sá Víking Stígvél á tæplega 5000kr fannst það soldið dýrt og kíkti í kringluna en fann engin stígvél svipað há þar. Fór í Hagkaup Garðabæ aftur í morgun að kaupa á stígvélin á dótturina og þegar ég fór að borga kom í ljós að þau voru komin í 6899kr. Ég reif nýja miðann af og á gamla miðanum var búið að tússa yfir verðið. Spurning hvort þessi hækkun eigi að koma á móti vsk dögunum sem eru núna í Hagkaup ? Það borgar sig greinilega að vera á varðbergi þegar sumar vörur lækka því þá virðast aðrar hækka.

Kveðja Ragnar Þórðarson.

Íslandsbanki með 0.5% "úttektargjald"

Sá að Íslandsbanki ætlar að taka 0,5% af úttektarfjárhæð til að standa straum af kostnaði vegna útgreiðslna sem er 50.000 kr. af 1.000.000kr.

http://www.islandsbanki.is/um-islandsbanka/frettir/nanar/item35354/Tímabundin_opnun_séreignarsparnaðar/

Þetta kalla ég rán. Þurfum við kannski líka að borga skatt af þessum 50.000 kr. þ.e. 18.600 eða alls 68.600 ?
Er ekki nóg fyrir þá að hafa getað leikið sér með peningana okkar undanfarin ár, þurfum við líka að borga þeim fyrir að ná þeim út?

Sá ekki á síðum Landsbanka, Byr og Kaupþing hvort þeir ætla að taka svona gjald
Ásrún Matthíasdóttir

KK og KVK jakkar

Langaði bara að forvitnast. Keypti jakka handa kallinum mínum í Cintamania í jólagjöf, urðum að skipta því hann var of lítill. Fundum jakka í gær sem okkur langaði að skipti í. KVK jakkinn kostaði 28.900 en KK 33.900, samt var þetta nákvæmlega sami jakkinn og allt eins nema stærðin. Er alltaf munur á KVK og KK vörum þótt þau séu nákvæmlega eins, er það ekki dáldið misrétti? Munaði alveg 5.000kr
Christa

Dýrt útprent

Ég vildi láta vita með okur hjá Leturprent, stafrænu prentstofunni Síðumúla 22. Ég er að leita mér að vinnu og þurfti að láta prenta út ferilskrár og lét prenta út 10 blaðsíður þar sem ég er ekki með prentara heima. Ég hringdi og sá sem ég talaði við talaði ekki um að það væri eitthvað lágmarks gjald annars hefði ég aldrei látið prenta þarna út. En fyrir 10 blaðsíður þurfti ég að borga 1500kr...frekar dýr hver síða. Ég var á leiðinni í viðtal og hafði ekki tíma að þrasa um þetta en algjört rugl að tala um lágmarksþjónustugjald og borga 1500kr fyrir 10 bls þar sem er nánast bara svart blek. En ég vildi amk láta vita af þessu.
Ein úr Kópavogi

miðvikudagur, 11. mars 2009

Lyfjaver svarar

Varðandi fyrirsögnina (hér að neðan) að Lyfjaver sé dýrast vill ég koma eftirfarandi á framfæri. Því miður fannst ekki tölvupóstur frá “ónefndum” varðandi fyrirpurnina um verðbreytingar á Norvasc, en verðskrá okkar í mars er eftirfarandi:

Amlo 10mg kostar 2.975 kr.

Norvasc 10mg kostar 4.956 kr.

Hjartamagnyl glas kostar 689 kr. án lyfseðils

Norvasc + Hjartmagnyl kostar því hjá okkur 5.611 krónur og Amlo + Hjartamagnyl kostar 3.630 krónur.
Verð á innfluttum lyfjum hefur lækkað um 15-20% síðan í desember en þá var verð á innfluttum lyfjum í hámarki og því óeðlilegt að bera saman verð í mars og desember. Verðskrá fyrir heildsölu- og smásöluverð er gefin út af Lyfjagreiðslunefnd fyrsta hvers mánaðar og apótekum síðan frjálst að gefa afslátt frá smásöluverði sem getur verið mismunandi á milli mánaða sérstaklega ef komið hafa á markað ný samheitalyf. Við ráðleggjum því neytendum að gera verðsamanburð á milli apóteka en Lyfjaver hefur það að markmiði að bjóða lágt lyfjaverð.

Með kveðju/Best regards,
Magnús Steinþórsson

Web: www.lyfjaver.is

Dempara-gúmmi á okurprís

Átti leið í N1 þar sem mig vantaði dempara-gúmmí. Þetta eru smá
gúmmíhringir, kannski 3-4 cm í þvermál. Á hvern dempara þarf 4 slík,
2 uppi og 2 niðri. Jú þeir eiga þetta til fyrir litlar 1.038.- eitt
stykkið! Ég er ekki sá meðvitaðasti þegar kemur að verðlagi en þarna
blöskraði mér gjörsamlega. Eftir smá eftirgrennslan lá leiðin í GS
varahluti. Í stað þess að borga 8.304.- fyrir þessi 8 gúmmí fékk ég
þau á 2.100.- Næstum fjörfaldur munur! Hvaða rugl er þetta!!!

Kær kveðja
Einar Jónsson

200 kall fyrir að sleppa við hlé

Undirrituð fór í Háskólabíó um daginn. Þetta var svokölluð "græn mynd",
sem er auglýst þannig að minna sé um auglýsingar og ekkert hlé og á þeim
forsendum er greitt hærra verð fyrir miðann sem kostar 1200 kr., s.s. 200
kr. meira en venjulegt verð. Eini munurinn sem mér fannst á þessari
sýningu og venjulegri var hléið, því ég gat ekki séð að eitthvað væri
minna um auglýsingar. Það mætti skilja sem svo, að með því að sleppa
hléi, sé bíóið að verða fyrir tapi sem fólk (ekki allir) myndi annars eyða
í bíósjoppunum.
Ég lít þannig á að þarna sér verið með ódýra afsökun fyrir að láta fólk
borga meira.

Rósa Guðmundsdóttir.

Kattasandur og kortagjald

Tók eftir því á síðasta yfirliti frá kortafyrirækinu mínu (Kreditkort hf.) að
útskriftargjaldið hafði hækkað úr 180kr í 396kr. 120% hækkum. Mér þykir þetta
frekar mikil hækkun.
Annað sem hefur hækkað mikið er Best Friend kattasandur í Bónus. Á einu ári
hefur hann hækkað úr 298kr í 859kr eða um 188%.
Með kveðju,
Jóhann Björgvinsson

Góðir í Kjötvinnslu Esju

Það er erfitt val hjá neyendum að fara og kaupa Nautakjöt.
Í kjötborðum er ekki merkt hvað er íslenskt- eða innflutt- hvaðan kjötið kemur yfirleitt.
Ef spurt er er fátt um svör.
Eftir að hafa eldað vantsblautar tægjur sem eg keypti á okurverði og var sagt að væru frá Esju Dugguvogi hringdi ég í þá.
Þar voru skjót og góð viðbrögð.
Þeir vildu að eg sæi hvernig kjötið frá þeim væri.
Eg fekk tvær hnullungsteikur sem hvorki voru seigar eða rennandi út í gufubaði á pönnunni.
Þetta var mjúkt og þétt kjöt og amerískar stórsteikur slá þessu ekki við.
Væri ekki ráð að eftirlit væri með hvað er verið að selja og neytendur fái rétt svör við hvaðan varan er komin.
Framleiðendur verða að fylgja því eftir.
Þakkir til Meistaranna í Kjötvinnslu Esju.

Erla Magna Alexandersdottir