þriðjudagur, 17. mars 2009

Góðir hjá Nóva

Ég er núna búinn að vera með símanúmer hjá Nova í eitt ár, og þar af leiðandi hætti ég að fá 2000 króna inneign frá þeim mánaðarlega.
Ég hringdi í þjónustuverið til að athuga afhverju ég hefði fengið 500 krónur inn á reikninginn minn í byrjun mánaðar (ekki að það sé neitt leiðinlegt). Þá fékk ég að vita að Nova væri að gefa mér 500 krónur mánaðarlega í óákveðin tíma, einfaldlega fyrir það að hafa verið tryggur viðskiptavinur! Ekkert stendur um þetta neinsstaðar í samning eða á síðunni þeirra svo ég viti, þannig að þetta eru þau greinilega ekki knúin til að gera.
Það er nú ekki algengt að fyrirtæki séu hreinlega að gefa manni peninga þessa dagana. Þótt þetta sé engin stórupphæð, þá gerði þetta mjög mikið fyrir mig og þeir mega vera vissir um að ég mun ekki færa viðskipti mín í náinni framtíð! :).. Frábær þjónusta
Hjörtur

1 ummæli:

  1. eftir að ég færði mig yfir til nova hefur símakostnaður min snarlækkað..svo var haft samband við mig fra nova og eg beðin um að koma að sækja nýt SIM kort vegna galla í gamla kortinu.og viti menn bíður eftir mér paskaegg NR.4 í afgreiðluni svona ut af óþægindum sem þetta hefur valdið mér.ég fann samt ekki fyrir þessum galla á neinn hátt og vill þakka fyrir mig....NOVA ÞIÐ ERUÐ BESTIR

    SvaraEyða