föstudagur, 11. desember 2009

Vigtin í Krónunni

Mér er mikið niðri fyrir þegar ég lýsi ferð minni í Krónuna í gær.
Þannig var að ég var að versla grænmeti og ávexti ásamt öðru.
Þegar ég kem út í bíl tek ég eftir því að ég borgaði rúmar 600 kr. fyrir eina papriku og hafði hún verið vigtuð 1,34 kg (já fyrir eina papriku) ég fer inn í búðina og segi þetta ekki passa og hún er vigtuð aftur og rétt er að hún er 210 grömm.
Ekki nóg með það heldur fer ég í þungum þönkum heim og ákveð að vigta allt sem ég hafði keypt:
Bananar Krónu vigt = 2,5 kg ....mín vigt 1,3 kg
Epli Krónu vigt = 2,2 kg ....mín vigt 1,1 kg
Melóna Krónu vigt = 2,0 kg .. mín vigt 1,1 kg
Magngó krónu vigt = 425g ....mín vigt 424g.

Auðvitað fór ég aftur í Krónuna og fékk endurgreitt samtals 1800 kr (með papriku-endurgreiðslunni). Þetta er hrikalegt. En segir okkur að vigtin er rétt því mangóið var rétt vigtað. Eru þetta mannleg mistök? Nei ég kalla þetta einbeittann brotavilja.
Kveðja,
Gyða S. Karlsdóttir

7 ummæli:

  1. Þetta er auðvitað bara ólöglegt og á að fara beint til Neytendasamtakanna! Og auðvitað í fjölmiðla líka.

    SvaraEyða
  2. Ég keypti banana í Krónunni á Höfðanum, þeir vigtuðu 0,68kg, heimilisvigtin vigtaði 0,69kg.

    Hvar var þessi vigt sem þú vitnar til?
    Ég hef tekið eftir því að Krónan er ekki allsstaðar með sama verð á hinum ýmsu hlutum auk þess sem þær eru eru misjafnar í að verðmerkja rétt. Líklega eru bara misgóðir verslunarstjórar á ferð.

    Krónan á Höfða virðist hafa tekið sig vel á í verðmerkingum og almennum heiðarleika undanfarið, en sú verslun var mjög slæm á tímabili.

    SvaraEyða
  3. Einbeittur brotavilji? Nei. Mannleg mistök? Já. Það hefur augljóslega eitthvað, um kíló að þyngd, legið á voginni meðan hluti ávaxtanna var vigtaður...

    SvaraEyða
  4. Vinn á kassa og maður þarf að vera ansi mikið utan við sig til þess að það fari eitthvað annað en það sem vigtað er hverju sinni á vogina. Hef sjálfur aldrei lent í því að kvartað hafi verið yfir vigtinni á vörum.

    SvaraEyða
  5. Ég vann einusinni sem yfirmaður kassalínu í verslun. Þar var önnur stúlka að vinna á kassanum og það kom ítrekað fyrir hjá henni að grænmetið viktaðist of þungt. Svo fór ég að fylgjast með henni þegar hún viktaði grænmetið og þá lá vömbin á henni á viktinni! hún var s.s. frekar magamikil.

    SvaraEyða
  6. Er löngu hætt að versla í Krónuni, alltof oft hefur vöruverð í hillu verið lægra en á kassa. Fer í Kost núna.

    SvaraEyða
  7. Lán allt að $ 500.000 og lánalínur allt að $ 100.000
         Einföld umsókn, ákvarðanir í mínútum
         Fjármögnun eins hratt og ein virkur dagur ef þú ert samþykkt
         Sölutrygging byggð á viðskiptasjóðstreymi, viðskipta- og persónulegum lánsfé
         Hafðu samband við okkur
        Tölvupóstur: atlasloan83@gmail.com
        whatsapp / Hangout + 14433459339
        Atlasloan.wordpress.com

    SvaraEyða