Okursíða Dr. Gunna (á netinu síðan 21. sept 2007) - Endilega reyndu að hemja þig þegar þú kommentar. Fólk hefur misþykkan skráp.
miðvikudagur, 11. mars 2009
Ókeypis rennilásaviðgerð
Ég setti leðurstígvél í viðgerð hjá skósmiðnum í Kringlunni. Rennilásinn var bilaður á öðru stígvélinu.
Þeir gáfu sér reyndar 4-5 daga sem mér fannst frekar langt. Þegar ég kom að sækja stígvélið þá höfðu þeir náð að gera við rennilásinn (þurftu ekki að setja nýjan lás eins og ég bjóst við) og ég borgaði ekki krónu fyrir viðgerðina.
Kristjana
Frítt fyrst, borga svo
Mig langar að benda á nýlega gjaldtöku símans á þjónustu sem ég tók fyrir nokkrum mánuðum síðan, þessi þjónusta var þegar ég fékk hana frí þjónusta en er núna 1.000 kr á mánuði eða 12.000 kr á ári. Síminn auglýsti skjá bíó vel og lengi á sínum tíma í nokkur skipti var hringt í mig og mér boðin þessi þjónusta frítt þar sem ég er með nettengingu, GSM og heimasíma hjá Símanum. Jú mér fannst þetta stór sniðugt þar sem hægt var að horfa á efnið klukkustund síðar ef maður getur t.d ekki séð fréttir kl 19:30 get ég horft á þær kl 20:30, þetta heitir plúsinn hjá sjá bíó og myndgæðin eru betri. Jæja hvað um það mig langaði ekki neitt í auka stöðvar og borgaði því ekkert fyrir þessa þjónustu, jú reyndar borgaði ég 13.000 kr fyrir þráðlausan sjónvarpssendir. Nýlega barst til mín bréf frá Símanum þar sem segir að nú muni Síminn taka 600 kr á mánuði fyrir myndlykilinn og 350 kr fyrir „ráderinn“ eða samtals rétt tæpar 1.000 kr. Mér finnst þetta algerlega ótrúlegt að auglýsa þessa frábæru þjónustu lengi og vel til þess að auka almenningsálitið á Símanum og síðan senda þeir þetta bréf til mín um gjaldtöku um leið og þeir eru í herferð um lægri GSM síma kostnað, „3 leiðir til þess að lækka GSM síma kostnað...“. Síminn skýlir þessari gjalddtöku á bak við þetta GSM síma kosnaðar átak sitt.
Jú ég gleymi reyndar einu ég fæ 3 stöðvar frítt í staðin! En ég hef ekkert val mig langar ekkert í þessar stöðvar ég vil frekar eiga 12.000 kr mínar og ráðstafa þeim á einhvern annan hátt.
Kjarninn er sá að mér líkar ekki að komið sé aftan að fólki á þennan hátt, þjónusta boðin frítt sem síðan er ekki frí þegar frá líður þá er samningnum breytt þegar maður er orðinn vanur því að hafa plúsinn. Þeir sem sagt húkka fólk, venja mann á gæði þess að hafa plúsinn og betri myndgæði og rukka mann svo seinna. Ég er bara mannleg og mun líklega ekki hætta með þessa þjónustu. Þetta er eins og þegar dópsalinn gefur fyrsta skammtinn og fólk ánetjast síðan er farið að rukka!
Takk fyrir að bjóða upp á að veita svona málum farveg til neytenda
Valdís Beck
"Vinnureglur" í gæludýrabúð
Seðlarnir og Íbó
Ólafur
Hnífasett í bakið


Hér má sjá sláandi verðsamanburð á hnífapörum hjá ELKO. Hnífapörin kostuðu 995 í september2008 en í janúar2009 kostuðu þau 1995. Þetta er meira en 100% hækkun. Eins og vörunúmerið á myndinni gefur til kynna að þá er ekki um að villast þetta er sama varan. Þeir bara lauma einum þarna framan á og vonast til þess að það pæli enginn í því.
Guðjón
(Nb. Alla verðhækkun í fyrra má útskýra með hinum klassíska söng: "Hækkun vegna gengisfalls íslensku krónunnar")
Okur í flugteríunni
gömlu flugstöðinni er sjálfsafgreiðslusjoppa sem er örugglegasta dýrasta sjoppa
landsinns, okrið er svo magnað að svali sem kostar tuttugu og áttakrónur í
innkaupum kostar tvöhundruð og fimmtíukrónur í sjálfsafgreiðslunni. Kók kostar
þrjúhundruð og brauðsneið sexhundruð, meira að segja er cokið dýrara í
cokesjálfsalanum þarna (sá sem maður setur peninginn í sjálfur) Dýrara en
nokkurstaðar annarstaðar, og til að kóróna allt er kaffið svo vont að það er
ódrekkandi.
Kv. Pálmi
Appelsínokur Súfistans
þriðjudagur, 10. mars 2009
Frönskuokur á Akureyri
við Skarðshlíð á Akureyri. Það er yfirleitt ca. 600gr í skammtinum og
verðið var 550kr. að mig minnir.
Um daginn fór ég og keypti stóran skammt af frönskum í þessu nesti. Svo
þegar heim var komið tók ég eftir því að þetta var bara hálfur skammtur.
Við hringdum í nestið og spurðumst fyrir um hvað stór skammtur ætti að
vera og það var sagt 600gr. Þá sögðumst við hafa keypt stóran skammt en
fengið hálfan sem voru 300gr. En þá fengum við þau svör að þau vigti
600gr. í skál og steikja. Úr því verður 300gr. af frönskum.... þvílíkt
kjaftæði. Rýrna semsagt franskarnar um 50% við steikingu???? Þau leyfa sér
að staðhæfa þetta þannig að núna kaupir maður 50% minna fyrir meira verð
því það er búið að hækka verðið í 595 kr. Þetta er orðið frekar mikið okur
þarna.
Ég mun ekki versla við þetta nesti framar.
kv. PGE
Lyfjaver dýrast!
Hef tekið eftir því að Lyfjaver við Suðurlandsbraut er sagt vera með lægra verð á lyfjum en aðrir.
Því miður hef ég allt aðra sögu að segja.
Ég kaupi ársfjórðungslega sama skammt af lyfjum þ.e. Norvasc 10 mg.(100 töflur, sérinnpakkaðar) og 100 stk. Hjartamagnyl (laust í dós).
Verð í síðustu 4 skiptin voru, skv. kassakvittunum lyfjabúðanna:
14.02.2008 - Apótekarinn, Mjódd - alls kr. 3.806
27.05.2008 - Lyfjaval í Mjódd - alls kr. 4.068
01.09.2008 - Lyfjaval í Mjódd - alls kr. 4.100
09.12.2008 - Lyfjaver, Suðurlandsbraut - alls kr. 6.461
Miðað við þetta er Lyfjaver rúmlega 50% dýrara en aðrir.
Ég sendi tölvupóst til Lyfjavers og spurði um ástæðu, en fékk ekkert svar.
Óskar nafnleyndar
Dýrt kakó í kulda
Kaldur íslenskur fjölskyldufaðir!
mánudagur, 9. mars 2009
Jarðaberin í Krónunni
Krónan er nýverið búin að opna glæsilegar verslanir í Kópavogi og úti
á Granda.
Að mínu mati eru þetta bestu búðirnar á íslandi í dag, rúmgóðar og
bjartar.
En það sem krónan er þó þekkt fyrir er rangar verðmerkingar og villandi.
Dæmi: Jarðaberin, sem mér finnst svo gó, og borða mikið af eru best í
Krónunni, en það fer rosalega í taugarnar á mér
að ekki skuli vera hægt að merkja vöruna rétt, þannig að við sjáum
hvað við erum að kaupa.
Á verðmekingunni stendur: Jarðaber, Holland 200 gr., maður áætlar að
þarna sé um að ræða Hollensk jarðaber,
og meira að segja lífrænt ræktuð, eins og segir á miða á kælinum, þar
sem berin eru, eða hvað?
Eins og sjá má, stendur: Lífrænt ræktað, og á hinni myndinni:
Jarðaber, box 200 Gr. Holland. En hver er raunveruleikinn ?
Eins og sjá má, eru berin frá Eþíópíu, annarsvegar, og Spáni
hinsvegar!!. En INNPÖKKUÐ í Hollandi, og ekkert á pakkningunum segir
mér að þetta sé lífrænt. Reyndar ery stóru safaríku Spánsku berin með
meira vatnsbragð (vatni sprautað í þau ?), en þau Afrísku, sem eru
miklu minni. Og svo eru öskjurnar 250 Gr. sem þýðir að verðið er ekki
einu sinni rétt á verðmerkingunni, og þó að það sé kúnnanum í hag
þarna, sýnir þetta ónámkvæmni og virðingarleysi fyrir þeim sjálfsögðu
réttindum kúnnans að fá réttar og skýrar upplýsingar um það, sem hann
er að kaupa.
En Jarðaberin bragðast alveg himneskt vel, og ég tek þau Spánsku
frekar, útlitsins vegna, en þau Afrísku bragðsins vegna. Það væri
gaman að prófa Hollensk jarðaber, eins og verðmerkingin gefur til
kynna að séu til.
Börkur Hrólfsson
Misdýr flugfargjöld hjá Express
Þannig var að móðir mín kaupir flug aðra leiðina frá Reykjavík til Alicante þann 8 apríl.
Hún kaupir miðann þriðjudag 3. mars. Og verðið er 33.700 fyrir utan um 10 þús gjöld með sætavali. Samtals aðra leið um 44 þúsund.
En viti menn svo þann 4. mars lækkar fargjaldið í 22.700 fyrir utan náttúrulega þessi aukagjöld .Eða lækkun á einum degi er um 11 þúsund. Sjá:

+

Vill ég því endilega vara fólk við því að kaupa og bóka sig of snemma í flug með Iceland Exspress.
Þórhallur
Hagstætt að versla á Íslandi - Kanntu annan?!
Hvernig í ósköpunum útskýrir Debenhams þessi verð? Bæði verð miðast við verð út úr búð með álagningu og til að geta verslað erlendis þarf maður að umreikna verðið með háu gengi pundsins.
Sá svo stígvél í Gs skóm sem ég gæti hugsað mér að eiga, ósköp látlaus svört há leðurstígvél. Verðmiðinn sýndi 38.990.- Þetta segir mér að fyrir eitt par af stígvélum og pils þarf ég að punga fyrir hátt í 60 þús kalli.
Sé því ekki hvernig sé hægt að selja það að það sé orðið hagstætt að versla hér á landi, þrátt fyrir gengið að þá hafa vörur bara hækkað það mikið hér á landi.
KJ
Lyfjaver vs. Lyfja
Sama dag, mismunandi apótek:
Drogen's Baldrian B (náttúru svefnlyf):
Lyfjaver, Suðurlandsbraut: 3.045 kr. Lyfja, Lágmúla: 3.319 kr. = +9%
Histasín (30 töflur):
Lyfjaver, Suðurlandsbraut: 1.038 kr. Lyfja, Lágmúla: 1.274 kr. = +23%
Paratabs (20 stk.):
Lyfjaver, Suðurlandsbraut: 150 kr. Lyfja, Lágmúla: 234 kr. = +56%
Naproxen:
Lyfjaver, Suðurlandsbraut: 244 kr. Lyfja, Lágmúla: 398 kr. = +63%!
Óskar Nafnleyndar
Okrið í Ikea
Langaði til að benda á okur og það hjá fyrirtæki sem gefur sig út fyrir að vernda lágt vöruverð á íslandi. Umrætt fyrirtæki er IKEA. Ég var að kaupa af þeim tvöfalda handlaug á baðherbergi. Þeir bjóða einnig uppá blöndunartæki og okkur leist vel á blöndunartæki sem heitir Dalskar. Þar sem þetta er tvöfaldur vaskur þá þurfum við 2 blöndunartæki. Hjá Ikea kostar blöndunartækið 14.950 kr stykkið eða 29.900 kr bæði saman. Okkur þótti það dýrt en sæmilega sloppið miðað við td. Byko eða Húsasmiðjuna. Þegar til kom var varan ekki til en væntanleg. Ikea gat ekki staðfest hvað langt væri í það en það væri amk 1-2 vikur. Þar sem ferming stendur fyrir dyrum ákvað ég að sjá hvort blöndunartækið væri til í IKEA í Svíþjóð og reyna þá að fá það sent eða einhvern til að koma með það. Viti menn það er til þar og bæði hægt að fá það sent eða kaupa í búð. Þegar ég sá verðið þá rak mig í rogastans. Þar kostar sama blöndunartæki 695 kr sænskar, eða 8.433 m/v gengi SEK á föstudaginn. Mismunurinn er heilar 6.516 kr á stykki, sparnaður fyrir mig uppá 13.034 kr fyrir bæði tækin! Ég athugaði skattamál og VSK í Svíþjóð er 25% eða 0,5% lægri en á Íslandi. Þennan gífurlega mun get ég með engu móti skilið eða samþykkt. Flutningskostnaður með DHL ásamt tollskýrslu væri um 7.000 kr en áreiðanlega hægt að fá það ódýrara með venjulegri frakt. Ég skoðaði svo verðið á baðherbergisinnréttingunni sem ég var að kaupa og þá batnaði ekki skapið en ég borgaði um 130.000 kr fyrir það hjá IKEA hérna en hefði kostað mig helmingi minna í Svíþjóð. Þetta er bara OKUR og verið að mjólka bágstadda íslendinga. Þeir mega reyna hjá IKEA að útskýra þennan mikla mun en það er bara ekki hægt! Ef þeir vilja fela sig á bakvið gengismál þá má spyrja þá útí hækkun sem þeir létu ganga yfir alla línuna hjá sér í október á seinasta ári. Enga höfum við séð lækkunina.
Að neðan eru tenglar á þetta blöndunartæki sem ég ræði um að ofan. Þetta er ekki einsdæmi heldur regla yfir alla vörulínu IKEA sýnist mér við fljóta og óvísindalega athugun á heimasíðum þeirra.
IKEA Svíþjóð:
http://www.ikea.com/se/sv/catalog/products/90135033
IKEA Íslandi:
Með kveðju og þökkum fyrir góða baráttu þína gegn okri,
Gnúpur
Límt yfir mikilvægar upplýsingar
Ég er aðdándi góðrar listar, bæði tón og kvikmynda. Þessvegna fer ég
öðru hvoru í plötubúðir til að kaupa, og skoða hvað er til.
Skífan í Kringlunni hefur verið mér þægileg, en nú er orðin mikil
breyting þar á bæ.
Allt í einu ber svo við, að í sennilega 80% tilfella með nýtt, eða
nýlegt efni, er ekki hægt að lesa til um innihald og/eða flytjendur,
sem hlýtur þó að vera aðalatriðið. Þjófavarnirnar eru límdar yfir
upplýsingar um innihald diskanna, það er ekki eins og ekki sé nóg pláss
á diskunum, heldur virðist eins og þetta sé gert af hugsunar leysi og
vankunnáttu.
Eins og sést á þeim myndum sem ég tók er
vandlega límt yfir upplýsingar, meira að segja upplýsingar, sem er skylt
samkvæmt lögum að hafa áberandi (T.D. aldurstakmark). Þarna hefði vel
verið hægt að líma þar sem enginn texti er, eða
jafnvel á forsíðuna sjálfa.
Einhverstaðar eru til lög um innihaldslýsingar vöru, og einnig er ég
ekki viss um að framleiðendur vörunnar væru ánægðir
með að ekki skuli vera hægt að lesa sér til um innihaldið.
Mér finnst þetta lýsa algeru metnaðar leysi verslunarstjórans, eða í
það minnsta vankunnáttu. Fyrir utan að vera óþolandi dónaskapur við
viðskiftavini búðarinnar. Að sjálfsögðu keypti ég ekki mikið þarna,
heldur fór í aðra plötubúð.
Kanski maður ætti að mæta fyrir utan höfuðstövar Senu með pottasettið,
og garga: VANHÆFIR VERSLUNARSTJÓRAR !!
Best regards,
Börkur Hrólfsson
sunnudagur, 8. mars 2009
Skyrið í Krónunni
Síminn!
Sem neytandi er ég seinþreyttur til vandræða en ég get ekki setið á mér, eftir að hafa fengi að símtal frá sölumanni Símans sem vildi bjóða mér „nýja og hagkvæma þjónustuleið“ eins og hann kallaði það. Allt hljómaði þetta vel í fyrstu en við nánari skoðun runnu á mig tvær ... eða þrjár grímur ... því Síminn er þvert á móti að hækka hjá símkostnaðinn með þessum nýju leiðum!
Sölumaðurinn sleppti því t.d. að nefna að upphafsgjaldið mitt á hverju símtali hækkar um meira en 140% og fer úr 4,9 kr. í 11,9 kr. Fyrsta mínútan kosta mig því nærri þvi 24 krónur sem er nær því að vera hæsta mínútverðið á Íslandi en ekki það lægsta! Hverslags rugl er þetta? Mín símtöl eru langflest stutt og því myndi ég tapa stórfé á því að velja „lægsta mínútuverðið“. Ég sé í auglýsingunum þeirra að ég get líka fengið það sem heitir „Núll í alla heimasíma.“ Það stenst heldur ekki skoðun því ég þarf að borga upphafsgjald fyrir öll símtöl í heimasíma. Ég er kannski ekki nógu greindur til að fatta þetta en ég get ekki skilið hvernig þetta kostar núll krónur ef ég þarf að borga fyrir hvert einasta símtal. Svo er ekki hægt að nota nein af þessum nýju „tilboðum“ inn í Núllið sem asnaðist til að skrá mig í fyrir nokkrum mánuðum – þar er smáa letrið svo mikið að það myndi fylla heila bók.
Þessar sjónhverfingar eru nett þreytandi og virðst einhvern veginn hafa þann eina tilgng að slá ryki í augun á manni. Finnst þetta alla vega eiga fullt erindi við fólk sem leggur það ekki á sig að skoða smáa letrið.Baldur
Síminn Síminn!!
Einnig þá bjóða þeir uppá að hringja ókeypis í 6 vini óháð kerfum (ef þú ert í frelsi) en þessi ókeypis þjónusta kostar 1990 kr. á mánuði !!!!! mér finnst það nú ekki mikið fríkeypis það, það væri nú gaman ef þú myndir kanna málið og heyra frá þeim hvernig þeir geta útskýrt þessar 2 villur í auglýsingum frá þeim :)
Jóhannes
(Nb. Það er hér með komið á framfæri. Símanum er velkomið að svara þessu í kommentakerfi).
Síminn Síminn Síminn!!!
Þetta er bara blekking þú þarft að borga 1.990.- á mán. til þess að eignast þessa 6 vini.
Ég kalla þetta skrum og hvað ætli þessi auglýsing kosti ? Svo er hún líka alltof löng og leiðinleg.
Þeim væri nær að lækka símareikningana í raun.
Guðrún.
Dýrt hjá Tónlist.is
Blekkjandi bæklingur?
Korinna
föstudagur, 6. mars 2009
Nóatúns-lambhagasalats-okur!
Hæ,
Reportera hér með að Lambhagasalat í boxi kostar 565 Kr. Í Nóatún Austurveri!
Mbk. Guðleif
Yfirvigtarokur Iceland Express
Ég kom með Iceland Express frá Friedrikshafen í síðustu viku og var rukkaður um 55 EUR fyrir 5 kg yfirvikt. Það finnst mér argasta OKUR !
Iceland Express ber því reyndar við að gjaldsrkáin fyrir yfirvikt sé 1000 kr íslenkar per kg og þetta sé dýrara vegna óhagstæðrar gengisþróunnar. Þó er ekki hægt að borga í IKR ytra.
En skoðum málið og notumst við hinar hógværu 1000 kr Iceland Express.
Þeir fljúga á þessari leið með Boeng 737 leiguvél sem getur borið að minnsta kosti 3000 kg af auka frakt- full af farþegum . Þungi vélarinnar vegna yfirviktar er því á engan hátt takmarkandi þáttur.
Iceland express leigir vélina og greiðir því væntanlega fast gjald fyrir hvern legg án tillits til farþegafjölda eða flugtaksþyngdar.
Iceland express býður flug ti Friedrikshaven fyrir um kr 40.000 báðar leiðir. Það gerir 20.000 hvora leið. ( Reyndar eflaust hægt að fá ódýrara á tilboðum ) Hver faþegi má hafa með sér 20 kg af farangri sem gerir 80 kg mann að 100 kg. Semsagt 200 kr/kg.
Hvers vegna þarf að rukka 1000 kr á KG fyrir yfirvikt þegar það kostar 200 kr á KG að flytja farþegann með farangri ?
Þetta kalla ég OKUR !
Með kveðju,
Hjörtur Eiríksson
Nefþurrkur!
staðnum sem ég bý í.vantaði blautnefþurrkur fyrir son minn sem heita Dr Fischer
og fór ég í Lyf og Heilsu og hafa þær kostað upp á síðkastið 342 kr pk,í dag
vantaði mig pk og hvað hldið þið?búið að hækka í 376 kr,pakkinn af þessum
þurrkum kosta kr 198- í Bónus,það er aðeins 88% verðmunur, það kalla ég okur!
Nafnlaus sendandi





