miðvikudagur, 11. apríl 2012

Okur í Hlíðarfjalli

Ég fór á skíði á Akureyri um páskana og þar er hægt að kaupa svartan ruslapoka sem búið er að klippa úr fyrir hendur og höfuð sem maður getur klætt sig í þegar það fer að rigna.

Þarna var hægt að kaupa 1 stk. svartann ruslapoka á 150 kr.
Á rúllunni eru 50 stk. af pokum.
Út í búð er hægt að kaupa svona rúllu með 50 pokum á ca. 3300 kr. sem þíðir að pokinn er á 66 kr. (eflaust ódýrara ef þeir fá afslátt)

Hlíðarfjall kaupir semsagt pokann á 66 kr. en selur hann svo áfram á 150 kr.



Kveðja,
Ein á skíðum

9 ummæli:

  1. Iss þetta er bara sanngjörn álagning, finnst mér. Svo er búið að klippa í pokann og allt.

    SvaraEyða
  2. 250kr væri sanngjarnt verð fyrir pokann.

    SvaraEyða
  3. Án þess að kasta rýrð á upplifun þess sem skrifar umrædda kvörtun vil ég benda á að ólíkt því sem er í Reykjarvík þá er ekki nema 5 mínútna skrepp í næstu búð á Akureyri. Hægt er að velja um tvær "klukkubúðir", 10-11 í Kaupvangi og Samkaup við Tröllagil. Einnig er hægt að skreppa í Bónus sem er staðsett í Naustahverfinu um 300 metra vestan við kirkjugarðinn og hesthúsagilið.

    SvaraEyða
  4. Þetta er alveg fáránleg athugasemd.

    Þetta er bara mjög sanngjarnt verð hjá þeim. Þetta er náttúrulega vinna fyrir þá. Þetta er greiðasemi, ekki gróðraskyn.

    SvaraEyða
  5. Vá! Bara Vá! Þetta er ein sú al lélegasta og aumasta ''Kvörtun'' sem ég hef séð á þessari síðu!

    SvaraEyða
  6. nota bene, þú þarft að kaupa alla rúlluna fyrir 1 poka, magnið tryggir betra verð. tel þetta ekki ósanngjarnt stk verð hjá þeim.

    SvaraEyða
  7. Frábær þjónusta og nánast gefins. Þarna er slit á skærum, rífa þarf pokann frá rúllunni, halda lager og brosa þegar nöldrarar eins og þú mæta á svæðið. :)

    SvaraEyða
  8. Íslensk hönnun hefur alltaf kostað sitt :)

    SvaraEyða
  9. Þetta er vitnisburður minn um hvernig ég gekk loksins til liðs við Nýju heimsregluna – Illuminati – eftir að hafa reynt það í meira en tvö ár, en svindlarar stal peningunum mínum ítrekað. Ég hafði lengi reynt að ganga til liðs við Illuminati, en svindlarar héldu áfram að taka peningana mína þar til fyrr á þessu ári þegar ég hitti Lord Felix á netinu. Ég hafði samband við hann, útskýrði aðstæður mínar og hann mælti með því að ég skráði mig. Ég borgaði fyrir aukagjaldsaðildina til að hefja ferlið og var vígður inn í Nýju heimsregluna rafrænt. Ég fékk 1.000.000 Bandaríkjadali inn á bankareikninginn minn strax eftir innvígslu mína á netinu og ég mun einnig þéna 33.000 Bandaríkjadali á mánuði. Ég er himinlifandi! Ég lofa að dreifa orðinu um frábært starf Lord Felix. Ef þú hefur áhuga á að ganga til liðs við Nýju heimsregluna Illuminati í dag, hafðu samband við Lord Felix núna, í stað þess að láta svindlara stela peningunum þínum undir því yfirskini að hjálpa þér að ganga til liðs. Hafðu samband við Lord Felix í gegnum WhatsApp í síma +44 7353 027456.

    SvaraEyða