fimmtudagur, 19. nóvember 2009

Gerið samanburð á íþróttavörum

Komið sæl, mig langar að koma þessar ábendingu á framfæri við landsmenn.
Stórfyrirtækið Intersport í eigu Byko ofl stórra aðila hafa undanfarin ár auglýst sig sem ódýrari valkost í íþróttavörum með slagorðunum Merkjavara á betra verði og 100% verðvernd.
Þetta hafa þeir eitt gríðarlegum fjármunum í að auglýsa sig upp, hvort sem er í sjónvarpinu, dagblöðum, bæklinum sendum heim og á netinu. En þessir aðilar í skjóli stærðarinnar geta leyft sér svona herferðir þar sem Intersport og síðan Útilíf í eigu Haga er lang lang stærstu aðilarnir á íþróttavöru markaðnum.
En 100% verðvernd virkar þannig að þeir setja alla ábyrgð á viðskiptavininn, þannig að þú verslar þér Nike peysu þar á gefum okkur að hún kosti 14.000 kr og eftir að þú gerðir þau kaup þá ferðu á stjá og skoðar aðrar verslanir og finnur sömu peysu í annari verslun á 11500 kr, þá þarftu að fara til verslunarinnar og fá kvittum fyrir því að þessi peysa kosti 11500 kr í þessari verslun og sé ekki á tilboði og fara með þá kvittun uppí intersport þar sem þú verslaðir peysuna og fá mismuninn endurgreiddan.
Það sem mér fynnst rangt við þessa aðferð er að í besta falli fer 1 af hverjum 40 viðskiptavinum í þennan leiðangur eftir að hafa verslað vöru og að með þessari auglýsinga herferð sinni er ótrúlegur fjöldi fólks sem fer bara í Intersport í leit að vörum með það í huga að þeir séu að gera betri kaup og skoða ekki aðra valmöguleika.
Ég hef verið starfsmaður í íþróttavöru verslun undanfarin ár og með þessu bréfi er ég ekki að auglýsa upp verslunina sem ég starfa hjá og algerlega óþarfi að nafngreina hana í þessu tilfelli, heldur vil ég benda fólki á að skoða fleiri valkosti þegar versla á íþróttavörur og merki því það sem ég hef komist að undanfarin 2 og hálft ár sem ég hef verið að fylgjast með þessu, hef verið sendur í verðkannanir í Intersport reglulega á þessum tíma er að verðin hafa undantekningalaust verið sambærileg EÐA Intersport hefur verið allt að 30% dýrari. Sérstaklega eftir hrunið í fyrra tók ég eftir þessu, um fyrsta árið voru öll verð mjög sambærileg, og ef Intersport var ódýrari sem gerðist mun sjaldnar en fólk almennt heldur þá munaði aldrei meira en 100-700 kr en oft líka var verslunin sem ég starfa hjá með ódýrari vöru.
En það sem hefur gerst undanfarið ár eftir hrunið er að ég hef enn ekki fundið eina einustu vöru sem hefur verið ódýrari í Intersport heldur en í öðrum sambærilegum verslunum og oftar en hitt hafa þeir sérstaklega undanfarið ár verið allt að 30% dýrari plús að vera með eldri vöru, og þetta get ég staðhæft.
En aðal atriði þessa bréfs er að neytendur séu meðvitaðir og láti ekki plata sig og gera bara ráð fyrir því að þeir séu að gera góð kaup í Intersport af því þeir eru alltaf ódýrastir, því það er langt frá því og bara PR vélin sem er að malla fyrir þá að þú heldur það. Farið á fleiri staði og skoðið verðin það skiptir gríðarlega miklu máli sérstaklega núna fyrir jólin þegar maður þarf að passa uppá budduna!
Kv,
Ólafur

6 ummæli:

  1. "Verðvernd" er ódýrt trikk hjá verslunum sem reyna að halda uppi háu vöruverði, og vilja ekki lækka sig nema þeir séu teknir í bólinu.

    Annað: þú "verslar" þér ekki föt, þú "kaupir" þér föt.

    SvaraEyða
  2. Hef nú alltaf hrökklast út úr Intersport þar sem mér finnst vöruverðið svo hátt hef lítin áhuga á þessari, verslun svo er líka vitavonlaust að fá aðstoð.

    SvaraEyða
  3. Ég hef tekið eftir þessu líka í Interspor, þeir auglísa sig svona alltaf en þegar ég hef kíkt þangað inn að leita mér af fótboltaskóm svo hef ég farið í Jóa Útherja og Fjörðinn þá komst ég að því að fótboltaskórnir sem Intersport voru með eru eldgamlir og hærri verðum!
    keypti mér vapor skó hjá Utherja fyrir soldlu nýjasta skóinn þá og borgaði 7000 kr minna fyrir hann heldur en fyrir gamla græna litinn í Intersport, gaurinn sem var að afgreiða mig átti til nokkur pör í þeim græna og hann bauð mér hann á 30% afslætti ef hann hefði passað á mig, átti bara ekki til mitt númer, ef ég hefði keypt hann af þeim þennan gamla græna hefði ég fengið hann um 12000 kr ódýrari en þeir í Intersport voru að auglísa þá á.
    plús fékk ég líka góða þjónustu frá gaur sem veit eitthvað hvað hann var að tala um, að reyna tala við þetta lið í Intersport var bara að eins og að tala við gufu, vissu bara ekki neitt um fótboltaskó!

    en ég er líka allveg hættur að einu sinni kíkja í þessar verslanir lengur

    SvaraEyða
  4. Intersport í eigu Byko? Eru þeir þá ekki tengdir Krónunni? Og Útilíf í eigu Haga, og þ.a.l. tengdir Hagkaupum? Hafði ekki hugmynd um þetta, en hef oft spáð í hvað þetta er svipaður samanburður, Intersport vs. Útilíf og Krónan vs. Hagkaup. Ein keðja sem þykist vera ódýr, önnur sem "er bara þarna", og maður sér fyrir sér miklu dýrari, en þegar maður mætir á staðin er hún mjög sambærileg, ef ekki ódýrari en býður samt betri þjónustu og vöruúrval.. Svo hefur maður á báðum mörkuðum litla þriðja kostinn sem er eiginlega bestur, en stundum óaðgengilegri enda bara á einum stað, úr leið og án bílastæða; Jói Útherji fyrir boltavörurnar, og Melabúðin með matvöruna ;)

    Sammála síðasta ræðumanni, maður hefur ekki einu sinni fyrir því að fara í Intersport þegar mann vantar eitthvað fyrir sportið.

    SvaraEyða
  5. Jebb Intersport er í eigu þessa Jóns sem á Byko,Krónuna,Nóatún,11-11 og einhverja Banka, sami Jón og var verið að fjalla um í DV um daginn.
    Útilíf er í eigu Bónus,Hagkaups,10-11 og Jóns Ásgeirs og félaga..

    Það ríkir engin einokun eða fákeppni á Íslandi neitt hmm.....
    2 stórir aðilar sem eiga basically allt í öllu í öllum smávöru bransanum hvort sem það er byggingavörur,tískufatnaður og skór,íþróttavörur,matvara,heildsala og smásala á lyfjum,jarðir og veiðiréttindi,fisk kvóti.

    Talandi um kolkrabba
    Kv Óli

    SvaraEyða
  6. Enda geta kolkrabbar klappað ansi mörgum á bakið á sama tíma!

    SvaraEyða