Aðal uppskerutími ársins er þessa dagana og þ.á.m. berjum. Ég er með sumarbústaðakot í Borgarfirðinum og þar er talvert af berjum sem ég hef verið að tína á hverju ári. Nú er svo komið að barnabörnin eru farin að tína líka og þá vantaði mig berjatínu.
Ég fór í Húsasmiðjuna og þar kostar sú gamla góða með taupoka 3700.- og ný gerð úr plasti 2400.-.
Mér fannst það full dýrt þannig að ég gekk út.
Fór í morgun í Fjarðarkaup og þar kostaði samskonar tínur 1900.- með taupokanum og 1200.- þessi úr plastinu.
Nú spyr ég: Er þetta hægt? Er þetta það sem Húsasmiðjan er að auglýsa?
Með Kveðju,
Jónas Marteinsson
Kannski "Mestu gæðin" ?
SvaraEyðaÞetta hljóta að vera lífrænt ræktaðar berjatínur hjá Húsasmiðjunni. kv Guðrún
SvaraEyðaPassið ykkur á verðlagningunni, bæði í húsasmiðjunni og Byko.
SvaraEyðaÍ fyrsta lagi eru þeir ekkert að panta inn af vörum, og í öðru lagi er verið að selja vörurnar eins og þetta sé hvert annað þrotabú, á hæsta mögulega verði.
--einn sem býður spenntur
eftir samkeppni frá Bauhaus
Bauhaus mun aldrei koma
SvaraEyða