mánudagur, 22. nóvember 2010

Icelandair 65% dýrara en SAS

Mig langaði að koma á framfæri reynslu minni af viðskiptum við Icelandair og SAS.
Ég byrjaði strax í ágúst að leita eftir hagstæðasta verði á flugi fyrir barn fram og til baka milli Stavanger og Keflavíkur yfir jólin. Þar sem ekki var í boði (á þessum tíma) beint flug til Stavanger, þurfti að kaupa einn innanlandsmiða í Noregi, og svo miða frá Osló til Keflavíkur.
Hagstæðasta verðið sem Icelandair gat boðið mér (og þetta var sannreynt nokkrum sinnum) var 111.000 (með fylgd) á ódýrustu mögulegu dagsetninum á bilinu 15. des til 10. jan. Inni í þessu verði er innanlandsflug með SAS frá Stavanger til Osló og millilandaflug með Icelandair frá Osló til Keflavíkur ásamt fylgd alla leiðina.
Þar sem mér þótti þetta í dýrari kantinum ákvað ég að prófa að setja mig í samband við SAS og athuga verð á sama flugi með þeim (ATH sömu leggir og flugvélar). Hjá þeim kostaði pakkinn 67.000.
Mbk,
Svanur Pálsson

4 ummæli:

  1. Ég var nú að leita mér að fara til Stokkhólms fyrir mig og kærustuna .... SAS rukkar 140.000 krónur báðar leiðir ... Icelandair rukkar 70.000 báðar leiðir

    SNAP !!!

    SvaraEyða
  2. Þú hefur beðið um far fyrir einn hjá Icelandair.

    SvaraEyða
  3. www.dohop.is

    finnur ódýrustu flugfargjöldin fyrir þig

    SvaraEyða