mánudagur, 25. júní 2012

Heimskuleg verðlagning apóteka


Fór í Lyfjaval til þess að leysa út svefnlyf, 10 töflu spjald í pakka og rak upp stór augu þegar ég fekk ca 1400 kr rukkun við afgreiðsluborðið því að fyrir fullan skammt (30 töflur) hef ég vanalega borgað nokkrum hundraðköllum minna. 


Eins er farið í Apótekaranum þegar ég í fússi fór þangað til að fá töflurnar á betri kjörum. Er eðlilegt að borga meira fyrir minna og minna fyrir meira? Skrýtið!


Ágúst

4 ummæli:

  1. Ef ég skil þig rétt þá er þetta ríkið með sitt dýrðlega tryggingakerfi sem bókstaflega er með fólk á kaupi við að framleiða svona rugl. Barasta ekkert með apótekin að gera.

    Fékk einhvern nefúða hérna um árið og læknirinn lét mig kaupa pakkningu með 4 stykkjum, það var ódýrara en eitt stykki. Ég þurfti bara eitt en réttlætingin var að eiga smávegis til vara ef meðferðin svaraði illa og svo auðvitað verðið.

    SvaraEyða
  2. Reyndar kemur tryggingakerfið ekki þarna inn í því tryggingarnar niðurgreiðsa almennt ekki svefnlyf.

    Sökin á þessu er algjörlega birgjans því af einhverjum ástæðum selur hann 10 stk. pakkninguna á verði sem er 13,5 % hærra en verðið á 30 stk. pakkningunni.

    Sjá:

    http://www.lgn.is/gogn/lyfjaverdskra_07_2012_heimasida.pdf

    bls. 34 (geri ráð fyrir að hér sé um að ræða svefnlyfið Imovane)

    kv. lyfjafræðingur

    SvaraEyða
  3. Þegar þú blandar saman heilsu og líðan fólks við peninga virðist allt vit og öll rök fara í felur.

    SvaraEyða
  4. Í stað þess að fá lán, fékk ég þegar forritað autt HRAÐBANKAKORT til að afturkalla hámark $5.000 daglega í 30 daga. Ég er svo ánægð með þetta því ég fékk mína í síðustu viku og ég hef notað það til að fá $50.000. Mr Mike er að gefa út kortið bara til að hjálpa fátækum og þurfandi þó það sé ólöglegt en það er eitthvað gott og hann er ekki eins og annað fólk þykjast hafa auða HRAÐBANKAKORT. Og enginn verður veiddur við notkun kortsins. Fáðu þig frá honum ég mæli fyllilega með honum. Bara senda honum tölvupóst á (blankatm002@gmail.com)

    SvaraEyða