mánudagur, 18. júní 2012

Auglýsingablekking Hagkaupsverslananna


Hagkaup auglýsir  "Tax Free" daga   þar sem virðisaukaskattur er felldur niður af ÖLLUM  fatnaði.  Svo að ég skunda  með fjölskylduna að versla skó fyrir sumarið.  Fundum öll þessa fínu skó og meira segja eitt strigaskópar á  tilboði, kr. 3.990.- í staðkr. 5.990.-
Glöð og ánægð með skóval okkar höldum við að afgreiðslukassa, en þar bíða okkar tvöföld vonbrigði.  Tilboðið átti ekki vð alla strigaskóna í þessari hillu (sem að voru allir á sama verðinu), nei bara eitt vörunúmer, en þessi ákveðna vörutegund tók sem svaraði um einum fimmta af hilluplássinu.  
Nú jæja,  það verður þá að hafa það,  virðisaukaskatturinn reiknast þó af.   En NEI,  í huga stjórnenda Hagkaups verslana  telst skófatnaður EKKI FATNAÐUR  !!! Er þetta í lagi ? Maður spyr sig. Ég er mjög ósátt með að hafa verið blekkt með þessum villandi auglýsingum.  Ég gat ekki hugsað mér að hætta við þessi skókaup, þar sem börnin mín voru svo alsæl og glöð með flottu skóna sína, og lét því þetta yfir mig ganga heldur en að takast á við vonbrigði og grát barnanna minna vegna ástæðu þess að ég vildi hætta við kaupin.  Hagkaup á að sjá sóma sinn í að taka fram í auglýsingum sínum, ef að eitthvað er undanskilið frá almennu hugtaki, samanber skófatnaður sé ekki hluti af fatnaði.  Þetta er álíka fáránlegt eins og að auglýsa afslátt af matvöru, en undanskilja frosinn mat.  Ég get allavega ekki fundið rökstuðning fyrir því að skór séu ekki hluti af fatnaði fólks.  Í mínum huga, og þeirra sem ég þekki, falla skókaup undir það að fata sig upp.  Ég verð nú að segja að ég sé ekki marga ganga um skólausa á götum úti. Það er nú frekar að maður sjái fólk spóka sig léttklætt að ofan en að það gangi um berfætt í bænum.
Eins þegar tilboð er auglýst á ákveðnum stað, (eins og tilboðsmiðinn á hillurekkanum) en á ekki við allar vörur á þeim stað, á að afmarka það með sér standi (eða körfu) svo að það leiki ekki vafi á því hvað er verið að selja á þessu sér tilboði.   Í mínum huga er þetta klárlega  auglýsingablekking.

Anna Rudolfsdóttir

4 ummæli:

  1. úff þó þú hugsir um að fatnaður sé bara ALLT sem viðkemur því að setja á sig einhverstaðar þá held ég nú að flestir lesi þegar stendur Fatnaður þá er það buxur,bolir,peysur,jakkar,skirtur brækur osf
    En Skór eru Skór.

    Í útlandinu er talað um Fatnað sem Apparel en Skó sem Footwear.
    ég er með verslun sjálfur og ef ég hef auglíst að nýr fatnaður sé kominn þá hef ég aldrei lent í því að einhver komi og leiti af skóm...

    Sama þegar ég hef til dæmis auglíst tilboð af fatnaði,dömu eða herra hef ég aldrei lent í því að einhver hefur gert ráð fyrir að það séu skór.....

    Sama með skótilboð þau hafa sjaldnast verið miskilin sem tilboð á fatnaði....

    ég er kannski bara sveitalegur en mér fynnst þetta vera óttalegt nöldur Nema reyndar síðasta klásan þar sem hárrétt er að Merkja skal Vel tilboðs vörur.
    kv

    SvaraEyða
  2. Skófatnaður er íslenskt orð.

    SvaraEyða
  3. Hagkaup er(u) líka með sérstaka "Tax Free"-skódaga, og þá gildir afslátturinn einungis fyrir skó, en ekki annan búnað/fatnað/klæðnað. Með vitneskju um það spurði ég sérstaklega um það síðast þegar auglýstur var afsláttur af fatnaði, hvort hann ætti líka við um skófatnað. Ef maður les smáa letrið hjá þeim má svosem lesa á milli lína að skór séu undanskildir, en þeir ættu kannski að sjá sóma sinn í að taka það sérstaklega fram.

    SvaraEyða
  4. Elsku kona Vaknaðu nú,fatnaður er ekki skór.Nota heilafrumurnar kostar sko ekkert.Við vitum að sumar auglísingar geta verið villandi en ef þú notar heilan og ert skinsöm þá platar þig EINGINN.

    SvaraEyða