tag:blogger.com,1999:blog-7278758533828999628.post3315043099947434378..comments2024-03-28T18:12:03.878+00:00Comments on Okur! Okur! Okur!: Dýrt stýrishosusett í BrimborgOkursíðanhttp://www.blogger.com/profile/05443985886836187758noreply@blogger.comBlogger3125tag:blogger.com,1999:blog-7278758533828999628.post-76798757301440823132010-02-26T11:51:28.671+00:002010-02-26T11:51:28.671+00:00Vegna færslunnar hér að ofan vill Brimborg koma ef...Vegna færslunnar hér að ofan vill Brimborg koma eftirfarandi á framfæri:

Samkvæmt okkar athugun var skipt um háþrýstislöngu á vökvastýri á umræddum bíl en ekki stýrishosusett eins og Böðvar talar um. Þessar vörur eru ekki sambærilegar. Um er að ræða misskilning því háþrýstislanga er ekki ósköp venjuleg bómullarbundin gúmmíhosa eins og Böðvar vill meina og nipplarnir eru ekki svo einfaldir að hægt sé að búa þá til með handborvél.

Hjá Brimborg er verð á háþrýstislöngu með nippli 38.815 kr. m. vsk. Þegar Böðvar hafði samband við Kistufell hefur hann fengið uppgefið verð á annarri vöru því samkvæmt upplýsingum frá Kistufelli selja þeir ekki háþrýstislöngur fyrir vökvastýri né stýrishosusett í Ford Focus. Við vitum ekki verð á hvaða vöru hann fékk uppgefið en ljóst er að ekki er verið að bera saman verð á sömu vöru og því er þessi samanburður ómarktækur. Þess má jafnframt geta að við gerðum verðkönnun og ekki er hægt að fá háþrýstislöngu á vökvastýri á 3.000 kr hjá neinum aðila hér á landi.

Varðandi reimasettið þá verður alltaf að meta hvert tilvik fyrir sig. Í einhverjum tilvikum er nóg að spreyja olíuhreinsi á reimarnar, skola og þurrka eins og Böðvar nefnir en svo er ekki alltaf. Í þessu tilviki mat bifvélavirkinn að nauðsynlegt væri að skipta um reim en eins og alltaf tekur eigandi ákvörðun um hvort viðgerð verði framkvæmd. Þegar viðskiptavinur kemur með bíl í viðgerð til Brimborgar notar bifvélavirki fagþekkingu sína og reynslu til að gefa ráðleggingar um það sem hann telur nauðsynlegt að gera en lokaákvörðun er að sjálfsögðu eigandans.

Kv. Sigurjón Ólafsson, framkvæmdastjóri eftirþjónustusviðs BrimborgarBrimborghttp://www.brimborg.isnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-7278758533828999628.post-49991837067622088212010-02-25T22:16:06.722+00:002010-02-25T22:16:06.722+00:00Stilling er nú bara að verða að sömu okurbúllunni ...Stilling er nú bara að verða að sömu okurbúllunni og mörg umboðin. Hef ítrekað rekið mig á að þeir eru jafnvel dýrari.Anonymousnoreply@blogger.comtag:blogger.com,1999:blog-7278758533828999628.post-4205910601485223002010-02-22T09:35:24.787+00:002010-02-22T09:35:24.787+00:00Best að fara í Stillingu fyrir svonaBest að fara í Stillingu fyrir svonaAnonymousnoreply@blogger.com